Á nýjum vettvangi og í Leifstöð

Það hafa verið spennandi tímar hjá mér undanfarið að kynnast gleraugnabransanum. Heimur gleraugnaviðskipta er sérstakur fyrir margrahluta sakir. Fyrstu gleraugnasalar á Íslandi voru augnlæknar sem fluttu inn sjóngler frá útlöndum og seldu þau sjúklingum sínum. Þegar fram liðu stundir komu fyrstu sjóntækjafræðingarnir til Íslands og byrjuðu að selja íslendingum sjóngler samkvæmt fyrirmælum sem gefin voru út af augnlæknum. Þjónusta gleraugnaverslanna er skemmtileg blanda af tísku og hárnákvæmu handverki.

gleraugu

Í dag eru gleraugnaverslanir á Íslandi vel á þriðja tug og þar starfa í flestum tilfellum sjónfræðingar með réttindi til sjónmælinga og verkstæðiskunnáttu. Árið 2005 var Ísland eitt af síðustu löndum í Evrópu til þess að leyfa sjónfræðingum með sjónmælingaréttindi að mæla sjón þrátt fyrir hávær mótmæli einhverra augnlækna. Sjónfræði og sjóntækjafræði er ekki hægt að læra á Íslandi og því er hópur fagmanna í greininni frekar fámennur.

Continue reading

Posted in Hugleiðingar | Comments Off

Yfirlýsing frá Félagi Háskólamenntaðra Ferðamálafræðinga

Félag háskólamenntaðra ferðamálafræðinga (FHF) telur ráðningu nýs ferðamálastjóra algjörlega á skjön við þróun íslenskra ferðaþjónustu undanfarin ár og ekki í takt við þarfir greinarinnar.

Auglýst var eftir einstaklingum með menntun sem nýttist í starfi og þekkingu á Íslandi og íslenskri ferðaþjónustu. Meðal umsækjenda voru a.m.k. 7 umsækjendur með sérhæfða háskólamenntun af sviði ferðamála auk víðtækrar reynslu í atvinnugreininni. Meðal þessara umsækjanda var t.a.m. Ársæll Harðarsson, markaðsstjóri Ferðamálastofu.

Continue reading

Posted in Uncategorized | Comments Off

Ferðamálastjóri er líffræðingur

Þegar ráðið er í æðstu embætti þjóðarinnar á þjóðin rétt á því að vandað sé til verka. Það gerði Össur Skarphéðinnsson ekki þegar hann réð Ölöfu Ýrr Atladóttur sem ferðamálastjóra á dögunum. Ekki það að ég er viss um að Ölöf Ýrr er ágætis manneskja og örugglega góður framkvæmdastjóri Vísindasiðanefndar þar sem hún hafði yfir tveimur starfsmönnum að ráða heldur hitt að greinin sjálf þurfti á framúrskarandi einstaklingi að halda með menntun í greinninni, þekkingu og reynslu úr íslenskri ferðaþjónustu.

Ef eitthvað er að marka það sem komið hefur fram í fjölmiðlum hefur Ólöf Ýrr enga þekkingu á ferðaþjónustunni, enga menntun úr greininni og enga starfsreynslu úr greininni. Hún hefur mjög litla stjórnendareynslu (yfirmaður tveggja starfsmanna Vísindasiðanefndar). Ef þessi prófíll er borin saman við auglýsingu ráðuneytisins þá er ráðning hennar út í hött.

Það hlýtur að hafa farið bjánahrollur um fráfarandi Ferðamálastjóra þegar reynt er að búa til starfsreynslu í starf ferðamálastjóra úr þunnri ferilskrá Ólafar með því að tína til að hún hafi verið landvörður þegar hún var 23 ára gömul eða þegar hún var hestasveinn í hestaferðum á nínunda áratugnum. Rétt er að taka fram að Ólöf er ekki leiðsögumaður eins og einhverstaðar var gefið í skyn í fjölmiðlum.

Continue reading

Posted in Pólitík | Comments Off

Islandreisen für Islandreisende die Qualitätsreisen suchen

Und hier ein bisschen Werbung in eigener Sache:

In disem Jahr wurde der Islandreise Spezialist Katla Travel GmbH in München 10 Jahre alt. Der neue Islandreisekatalog 2008 ist jetzt erschienen und kann auf der hompage des Islandreisespezialisten www.katla-travel.is bestellt werden.

Im Einführungstext des Kataloges steht: “Beeindruckende Landschaften, spektakuläre Naturschauspiele, unvergleichlich reine Luft und eine schier unendliche Sicht üben einen außergewöhnlichen Zauber. Erleben Sie Natur pur auf der Insel aus Feuer und Eis: Geysire, Lava, Vulkane, heiße Quellen, tanzende Nord- lichter, Mitternachtssonne, eisverhangene Wasserfälle, die Blaue Lagune, Islands Hauptstadt Reykjavik und vieles mehr.”

Reif für die Insel? Islandreisen vom Island Reise Spezialist Katla Travel GmbH in München.

Ab Januar 2008 können Sie auch Islandreisen Online buchen unter www.islandreisen-online.de

Posted in Deutsch | Comments Off

Birgir Grétarsson – minningartónleikar

Á föstudagskvöldið voru minningartónleikar í Víðistaðakirkju um vin minn Birgi Grétarsson sem lést eftir hörmuleg vinnuslys 27. október 1987. Birgir lét eftir sig barnshafandi unnustu, Hönnu Björk Guðjónsdóttur. Bæði hún og Björg dóttir þeirra sem varð tvítug á föstudaginn komu fram á tónleikunum sem og hópur valinkunnra tónlistarmanna sem nánast allir eru úr nánustu fjölskyldu Birgis. Víðistaðakirkja var þéttsetin og 400-500 manns komu á tónleikana. Stemmingin var frábær og tónleikarnir voru mjög flottir.

Meðal þeirra sem fram komu var kór Flensborgarskólans en Birgir söng í þeim kór á menntaskólaárum sínum. Bræður Birgis Gummi og Ingi Valur og dóttir hans léku syrpu af lögum, Ingibgjörg Guðjónsdóttir frænka Birgis og sópransöngkona söng eitt lag. Hann Björk Guðjónsdóttir söng þrjú lög og dúett með dóttur sinni Björgu. Djassgeggjararnir Óskar og Ómar Guðjónsynir frændur Birgis léku nokkur lög. Meðal undirleikara voru Antonia Havesi, Andri Þór Ólafsson og Matthías Hemstock.
Allir listamennirnir gáfu vinnu sína og allur ágóði rann til Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna, í minningu Sigríðar Grétarsdóttur systur Birgis, sem lést sökum hjartagalla aðeins mánaðargömul árið 1966.

Ég hafði aldrei farið á minningartónleika og vissi ekki hverju ég átti von. Ég hafði þó grun um að vel yrði að verki staðið enda frábært hæfileikafólk á ferðinni. Ég var virkilega snortinn þetta kvöld, það var yndislegt að hitta fjölskyldu Birgis og alla þessa gömlu Flensborgara og fólkið sem maður tengdist í gegnum Birgi. Minningarnar sem áður voru svo sárar eru ekki lengur sárar. Notalegar minningar um góða tíma og góðan dreng hafa vikið fyrir sorginni og það er gott.

Posted in Prívat | Comments Off

Sjónlínan gleraugnaverslun

Nú er Gleraugnaverslunin Sjónlínan loksins búin að opna dyrnar. Þetta hefur átt sér langann aðdraganda en konan mín Kristín Dóra Sigurjónsdóttir er sjónfræðingur með réttindi til sjónmælinga. Hingað til hefur hún unnið í öðrum gleraugnaverslunum en með opnun Sjónlínunnar tók hún skrefið út í sjálfstæðann atvinnurekstur.

gleraugnaverslun

Ég hef nokkrum sinnum áður tekið þátt í að stofna fyrirtæki en það er öðruvísi að stofna fjölskyldufyrirtæki. Við undirbúning fjölskyldufyrirtækis fer hugmyndavinnan fram við eldhúsborðið á kvöldin frekar en við fundarborð á skrifstofutíma. Allt færist inná heimilið bæði ákvarðanataka sem og áhyggjur og eftirvænting. Ég hef verið frekar gagnrýninn á að hjón starfi saman í fyrirtækjarekstri en þessi undirbúningur núna hefur verið spennandi og skemmtilegur. Kannski þarf ég að fara að endurskoða afstöðu mína … Continue reading

Posted in Prívat | Comments Off

“Duty Free” er úrelt fyrirbæri

Hér á árum áður voru ferðir til útlanda undantekning hjá almenningi. Farmenn á skipum og síðar flugáhafnir böðuðu sig í ljóma hins framandi og óþekkta, öfundaðir af þeim sem heima sátu. Einhverra hluta vegna var byrjað á því að leyfa þeim sem ferðuðust til útlanda að flytja inn vörur í takmörkuðu magni án þess að þurfa að borga af þeim skatta og gjöld eins og þeir sem heima sátu þurftu að borga. Mér sjálfum þótti þetta sjálfsagt og hélt reyndar sem barn og unglingur að sprúttsala væri sjálfsagður hluti af starfi flugliða og sjóliða sem ég þekkti til.

Hvert ert þú að fara ?

Continue reading

Posted in Pólitík | Comments Off

Marinering á fæti

Við íslendingar fundum ekki upp svín sem glóa í myrkri. Þar var ríkisháskólinn í Taiwan á undan okkur með því að nota gen úr “jellyfish”. Uppfinning þeirra vakti heimsathygli í janúar 2006. Okkar uppfinning er miklu einfaldari og ekki alveg eins mikil snilld. Lömbin eru nú marineruð á fæti.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Krónan og yfirlýsingar

Það verður líklega ekki aftur snúið á leiðinni í einhverskonar mynttengingu við Evruland eða hugsanlega upptöku Evrunnar einhliða eða með inngöngu í myntbandalagið. Fjölmiðlamenn geta hinsvegar ekki ætlast til þess að seðlabankastjóri eða forsætisráðherra gefi út yfirlýsingar um vilja til upptöku Evru á þessu stigi málsins. Íslenska krónan er á opnum markaði. Viðskipti með krónuna og staða þeirra hefur gríðarleg áhrif hér innanlands. Yfirlýsing frá forsætisráðherra eða seðlabankastjóra gegn krónunni gæti sett af stað harkaleg og ófyrirsjáanleg viðbrögð á peningamarkaði. Hrun krónunnar þýðir að undirliggjandi verðbólga innanlands kemur uppá yfirborðið. Seðlabankinn hefur það sem meginmarkmið að halda verðbólgunni niðri og lág verðbólga er forsenda fyrir skynsömum kjarasamningum í vetur. Í þessu umhverfi er fáránlegt að búast við því að seðlabankastjóri og forsætisráðherra viðurkenni sannleikann um stöðu krónunnar.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Er Ísland ekki “nýmarkaðsríki”?

Glöggt er gests augað segir máltækið. Í vefriti fjármálaráðuneytisins er kvartað yfir því að greiningaraðilar erlendis kalli Ísland “nýmarkaðsríki” eins og Tyrkland, Ungverjaland, Nýja Sjáland og fleiri lönd. Þar segir í dag  “Ísland er oft flokkað með nýmarkaðsríkjum í umfjöllun um hávaxtamyntir. Sú flokkun er ekki viðeigandi í tilviki Íslands þar sem nýmarkaðsríki eru að öllu jöfnu miðlungs-/lágtekjuríki með skamma reynslu af markaðsbúskap og misvel mótað stofnanaumhverfi. Ísland er hins vegar hátekjuríki með þróað stofnanaumhverfi og ábyrga efnahagsstjórn.” (vefrit fjmr 23.08.07) Continue reading

Posted in Pólitík | Comments Off