Góður þáttur á RUV um skipulagsmál í Hafnarfirði

Ég mæli eindregið með þættinum Krossgötur sem sendur var út á Rás 1 í dag kl. 13:00. Þar ræðir Hjálmar Sveinsson útvarpsmaður við Sigmund Davíð Gunnlaugsson skipulagshagfræðing og Jónatan Garðarson framkvæmdastjóra og hafnfirðing um skipulagsmál í Hafnarfirði. Þar er sérstaklega fjallað um Strandgötuna og það skarð sem Hanza hópurinn skilur nú eftir sig óbyggt þrátt fyrir að hafa fengið Samfylkinguna til þess að samþykkja þar risastórann kumbalda sem nær langt út fyrir annars gildandi deiliskipulag í miðbænum.
Til þess að hlusta á þáttinn smelltu þá hér
Í þættinum eru nefndir til sögunnar þeir sem bera ábyrgð á skipulagsmálum í Hafnafirði í dag og skrifðu undir deiliskipulag miðbæjar árið 2004. Það eru Bjarki Elíasson, embættismaður, sviðsstjóri skipulags- og byggingamála, Lúðvík Geirsson bæjarstjóri og Gísli Valdimarsson formaður skipulags- og bygginganefndar. Þar er bent á að ábyrgð þeirra sé mikil í skipulagsklúðrum síðustu ára en einnig kemur fram gagnrýni á skipulagsmál í Hafnarfirði undanfarna áratugi.

Góðar stundir.

Posted in Pólitík | Comments Off

Farið að lögum

Er það ásættanlegt í okkar góða samfélagi að einhver hópur fólks komist upp með að svifta þúsundir almennra borgara ferðafrelsi sínu til þess að þrýsta á lægri skattheimtu til handa sjálfum sér? Að einhver hópur fólks loki stofnbrautum og valdi bæði hættu og almenningi og fyrirtækjum tug milljóna tjóni til þess eins að koma sjálfum sér og sínum rekstri í betri stöðu?

Nei mér finnst það ekki ásættanlegt. En af hverju var ekki búið að kæra vörubílstjórana fyrir athæfi sitt? Hefði ekki verið eðlilegra að kæra þá og draga fyrir dómara strax við fyrstu aðgerðir? Ef ég brýt af mér í umferðinni og óhlýðnast lögreglunni er ég þá ekki sektaður eða kærður og dæmdur? Ég átta mig ekki á því hversvegna þessi gamla og góða aðferð til að halda uppi lögum og reglum átti ekki við hér? Continue reading

Posted in Hugleiðingar | 4 Comments

Íhaldsmenn og Græningjar í eina sæng í Hamborg

Það hefur nú legið í loftinu um nokkurn tíma að CDU og GAL (Grün-Alternative Liste) gætu sameinast í ríkisstjórn Hamborgarfylkis eftir þingkosningarnar sem nú er lokið. Eftir að umræðan um þennan möguleika fór í af stað í aðdraganda kosninganna byrjaði fylgið að hrynja af GAL. Í miklu pati rétt fyrir kosningar lýstu leiðtogar græningja því yfir að rísstjórnarsamstarf við hægrimenn kæmi ekki til greina en það náði ekki í gegn, a.m.k. tókst þeim ekki að snúa vörn í sókn fyrir kosningar. Það voru þung skref fyrir flokkinn að bakka frá þessari yfirlýsingu núna strax eftir kosningar og örugglega ekki til þess að bæta ímynd stjórnmálanna í Þýskalandi.

Freie Hansestadt Hamburg
Þýskaland skiptist í 16 fylki og þar af eru tvö borgarfylki Hamburg og Bremen. Í borgarfylkjunum eru fylkis- og sveitarstjórnarverkefni á einni hendi þannig að ríkisstjórnin (Der Senat, 10 meðlimir) er um leið borgarstjórnin. Borgarstjórnin er studd af fylkisþinginu (Bürgerschaft) en þar sitja í Hamburg 121 fulltrúi. Í þingkosningunum árið 2004 fengu hægrimenn (CDU) hreinan meirihluta en fyrir u.þ.b. ári varð ljóst að litlar líkur væru á að það næðist aftur árið 2008.

Continue reading

Posted in Pólitík, Þýskaland | 1 Comment

Líffræðingur án reynslu úr greininni gerður að ferðamálastjóra.

TILKYNNING FRÁ FÉLAGI HÁSKÓLAMENNTAÐRA FERÐAMÁLAFRÆÐINGA

Félag háskólamenntaðra ferðamálafræðinga (FHF) telur ráðningu nýs ferðamálastjóra algjörlega á skjön við þróun íslenskra ferðaþjónustu undanfarin ár og ekki í takt við þarfir greinarinnar.

Auglýst var eftir einstaklingum með menntun sem nýttist í starfi og þekkingu á Íslandi og íslenskri ferðaþjónustu. Meðal umsækjenda voru a.m.k. 7 umsækjendur með sérhæfða háskólamenntun af sviði ferðamála auk víðtækrar reynslu í atvinnugreininni. Meðal þessara umsækjanda var t.a.m. Ársæll Harðarsson, markaðsstjóri Ferðamálastofu. Continue reading

Posted in Pólitík | Comments Off

Formaður fjárlaganefndar og Besserwisser.is

Fyrrverandi forseti bæjarstjórnar, Gunnar Svavarsson samfylkingarmaður og núverandi formaður fjárlaganefndar Alþingis var kominn í rökþrot í ræðustóli á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í síðustu viku þegar hann greip á það ráð, eins og hann gerir víst oft, að gagnrýna menn sem ekki eru á staðnum og ræða málefni sem ekki eru til umræðu.

Í þessum anda hóf hann uppúr þurru að gagnrýna mig fyrir grein sem ég skrifaði hér á þessa heimasíðu mína fyrir einum og hálfum mánuði síðan þegar krónan tók að gefa eftir og ljóst var að þrálátu þensluskeiði í íslensku hagkerfi væri að ljúka. Hann sagði að grein þessi væri einsdæmi og sýndi það að ég væri kreppukarl og fussaði svo og sveiaði yfir því að ég hefði fagnað yfirvofandi atvinnuleysi. Grein þessi lá greinilega þungt á honum enda kom hann upp aftur og aftur og vitnaði í greinina og reyndi að gera sjálfstæðismenn á fundinum ábyrga fyrir þessum málflutningi mínum.

Ég get bara fagnað því að Gunnar lesi heimasíðu mína en tel þó rétt að benda á að menn þurfa ekki að fara í ræðustól á fundum bæjarstjórnar Hafnarfjarðar til þess að svara skrifum mínum. Ég er hvorki í bæjarfulltrúi né sit ég í nefnd eða ráðum bæjarins og gæti því misst af umræðum um skrif mín á fundum bæjarstjórnar. Ég bendi því lesendum á að nota athugasemdakerfið sem er að finna hér á síðunni. Það tryggir að allir lesendur sjái strax athugasemdirnar og það gefur mér líka sanngjarnt tækifæri til þess að bregðast við athugasemdum.

Ég mun í annarri grein útskýra betur fyrir áhugasömum lesendum afhverju ég fagnaði endalokum þensluskeiðsins á sínum tíma og afhverju ég tel að eitthvað atvinnuleysi sé nauðsynlegt í okkar hagkerfi.

Góðar stundir

Posted in Pólitík | Comments Off

Leiguflug til Búkarest

Það er lýðskrum hjá andstæðingum ríkistjórnarinnar að gagnrýna Geir H. Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu fyrir leiguflug þeirra til Búkarest á dögunum. Ég veit það sjálfur af reynslu minni úr ferðaþjónustunni að ódýrasti kosturinn er nær aldrei hagkvæmasti kosturinn og leiguflug getur einfaldlega verið ódýr lausn.

Samkvæmt mínum athugunum hefði ódýrasti ferðamáti tekið samtals 26 klukkustundir (www.dohop.com) fram og til baka fyrir utan að hópurinn hefði þurft að leggja af stað 12 klukkustundum fyrr í ferðalagið. Með leiguflugi var hægt að leggja af stað á réttum tíma og allur hópurinn sparaði sér 14 klukkustundir í ferðatíma og 12 klukkustundir í ónýttan eða ílla nýttan tíma á staðnum auk hótelrýmis fyrir allan hópinn í eina nótt og þar með dapeninga fyrir allan hópinn í einn sólahring.

Þvert ofan í kannski hugmyndir margra þá er venjulegur flugmiði frá Keflavík til Bukarest rándýr en ég fann ódýrustu leiðina á 125 þúsund krónur í gegnum London. Ég geri ráð fyrir að sama leið kosti á betra farrými með vinnuaðstöðu, vinnufrið og betri þjónustu á bilinu 200 – 250 þúsund en leiguflug sömu leið gæti kostað í kringum 4 milljónir og því auðveldlega verið lang ódýrasti kosturinn fyrir t.d. 12 manna hóp sem sparaði heilan sólahring í ferðalög, gistingu og dagpeninga.

Góðar stundir

Posted in Prívat | Comments Off

Finanz-Wikinger in Seenot

Ist ein Ende der “Island-Saga” in Sicht? Seinen Befürwortern zufolge vollbringt der Kapitalismus Wunder, so genannte “Wirtschaftswunder”. Auf wessen Kosten die gehen, wird dabei in der Regel diskret verschwiegen. Einer der letzten Schauplätze dieser “Wunder” war Island. Doch mit der weltweiten Finanzkrise scheint jetzt auch dort die irdische Normalität zurückzukehren. download Einige Rahmendaten der [extern] Island-Saga, wie sie die “Financial Times” in einem Leitartikel am 25.März nannte, waren in der Tat beeindruckend. Seit 1996 bewegte sich das jährliche Wirtschaftswachstum (einen kurzen Einbruch im Jahr 2002 ausgenommen) stets zwischen 4% und 6,5%. Vollbeschäftigung ist auf Island noch kein Fremdwort: Die Arbeitslosigkeit liegt inzwischen unter 1%, der Anteil der Erwerbstätigen an der Gesamtbevölkerung bei rekordverdächtigen 84,2% – und das obwohl sich die Zahl der Arbeitsimmigranten seit 1998 mehr als verfünffachte.

Continue reading

Posted in Deutsch, Pólitík | Comments Off

Já Þetta verða 100.465.019.826.099,- kr. takk.

Ég hef nú minnst á það áður að nú er í uppsiglingu mikil gósentíð hjá okkur sem lifum á útflutningi á vörum og þjónustu frá Íslandi. Við fáum í dag 50% fleiri krónur fyrir vörurnar okkar en við fengum t.d. fyrir fimm mánuðum síðan. En á móti koma auðvitað innlendar kostnaðarhækkanir og sú staðreynd að margir ferðaþjónustuaðilar hafa fyrir löngu skipt um gjaldmiðil og gera bæði verðsamninga í Evrum og fjármagna sig með lánum í Evrum.

Síðustu ár hafa einkennst af miklum uppgangi, útrás íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði, ört hækkandi verði hlutabréfa, fasteignaverðshækkunum og uppgangstímum í byggingaiðnaði. Þetta hefur verið gósentíð banka og fjárfestingarfyrirtækja sem hafa makað krókin svo um munar. Kaupmáttur launa hefur aldrei vaxið jafn mikið yfir jafn langt tímabil í íslandssögunni og atvinnuleysi hefur verið nær ekkert.

Kaupmáttaraukningin byggði í grunnin á þeirri einföldu staðreynd að launahækkanir voru meiri en sem nam verðbólgunni og af hverju? Jú vegna þess að hátt gengi krónunnar sem byggðist á ofurháu vaxtastigi tryggði okkur mjög ódýrar innfluttar vörur og með hærri vöxtum hækkaði krónan og innflutar vörur lækkuðu eða stóðu í stað og drógu þannig úr verðbólgu. Allir græddu nema útflytjendur sem fengu færri og færri íslenskar krónur fyrir útflutningsvörur sínar. Á móti því tapi kom auðvita hækkandi verð fyrir fiskafurðir á erlendum mörkuðum og vaxandi eftirspurn sem þoldi einhverjar verðhækkanir í ferðaþjónustunni. Til viðbótar þessu ástandi kom gríðarleg eftirspurn eftir vinnuafli sem þýddi launaskrið og þar með hækkun innlends kostnaðar fyrir útflutningsfyrirtækin sem og önnur
Þessi mikla veisla fjármálastofnanna og almennings gekk mjög vel á meðan erlendir fjárfestar höfðu áhuga á að ávaxta sitt fé hér á Íslandi. Sú stemming hefur núna breyst og við stöndum frammi fyrir því að partíið sé búið. Það sem verra er, þjónninn er kominn með reikninginn og vill fá borgað og hann tekur ekki kort og hann tekur heldur ekki íslenskar krónur nema þá með helmings afföllum :-(

Hvað gerum við nú? Múskíkin er þögnuð, þjónninn horfir ógnandi í augun á okkur og einu álvöru peningarnir sem við eigum eru skuldir í erlendri mynt.

Í öllum erfiðleikum felast tækifæri og stundum eru þeir nauðsynlegir til þess að við tökum framförum. Ég hlakka til að fylgjast með íslensku þjóðarskútunni þegar hún siglir upp úr þessum táradal. Það er ekki ólíklegt að við verðum þá á leið inní Evrópusambandið.
Góðar stundir

Posted in Uncategorized | Comments Off

Okkar á milli hjá RUV

Var í útvarpsviðtali í morgun í þættinum “Okkar á milli”. Þar fær einn gestur að tala um störf sín, skoðanir og hagi í 40 mínútur á Rás 1:

Til þess að hlusta á þáttinn ýttu þá hér

Ekki gefast upp, upptakan byrjar á nokkrum sekúndum af Bjarna Fel :-)

Posted in Prívat | Comments Off

Velkominn samdráttur

Það eru góðir tímar á Íslandi núna og langt síðan að svona byrlega hefur blásið fyrir neytendur og atvinnulíf. Þenslan sem hefur riðið hér húsum er í rénun og fyrir það getum við íbúar þessa lands verið þakklátir. Við erum á leið aftur inní raunveruleikann – takk fyrir það.

Íslenskar fjölskyldur sem flestar skulda húsin sín og fleira í íslenskum krónum geta búist við því á næstunni að vextir taki að lækka og verði komnir í nokkuð eðlilegt horf í lok ársins 2009. Óhjákvæmilegt verðbólguskot sem fram kemur næstu vikur á meðan gengi krónunnar er að ganga til baka er skafl sem við verðum að fara í gegnum. Þegar við verðum komin þar í gegn getum við vonandi farið að lifa eðlilegu efnahags- og atvinnulífi í þessu landi.
Útflutningsgreinarnar eins og þekkingariðnaður og ferðaþjónusta sem blætt hefur á þensluskeiðinu vegna fáránlegs gengis krónunnar mega nú eiga von á betri tíð með blóm í haga.

Auðvitað munu einhverjir sem fengið hafa mikið fyrir lítið á þennsluskeiðinu uppnefna raunveruleikan kreppu og jafnvel hrópa álver álver eða kalla á aðgerðir ríkisvaldsins til þess að viðhalda gerviveröldinni sem var svo góð fyrir þá.

Fráhvörfin verða einhverjum erfið eins og t.d. byggingageiranum sem virðist hafa fullnægt margra ára eftirspurn eftir íbúðrhúsnæði á örfáum árum. Það er hinsvegar greininni sjálfri að kenna. Ef Helgi í Góu framleiðir 10 ára skammt af Hrauni og Æði á 3 eða 4 árum þá situr hann sjálfur í súpunni og enginn hjálpar honum. Þannig á það líka að vera með byggingageirann. Annars skilst mér að þau íbúðarhús sem byggð hafa verið hér síðustu árin séu svo ílla byggð að framundan sé mikið blómaskeið allra sem sinna viðgerðum og viðhaldi á húsnæði.

Við erum á leið aftur inní raunveruleikan með meiri stöðugleika, lægri vöxtum og einhverju atvinnuleysi sem er hverju hagkerfi nauðsynlegt upp að vissu marki.

Auðvitað verður ekki eins rosalega gaman að vera fjármálaráðherra eða bankastjóri í raunveruleikanum. En fyrir flesta aðra íbúa þessa lands eru bjartari tímar framundan.

Til hamingju Ísland

Posted in Hugleiðingar | Comments Off