TILKYNNING FRÁ FÉLAGI HÁSKÓLAMENNTAÐRA FERÐAMÁLAFRÆÐINGA
Félag háskólamenntaðra ferðamálafræðinga (FHF) telur ráðningu nýs ferðamálastjóra algjörlega á skjön við þróun íslenskra ferðaþjónustu undanfarin ár og ekki í takt við þarfir greinarinnar.
Auglýst var eftir einstaklingum með menntun sem nýttist í starfi og þekkingu á Íslandi og íslenskri ferðaþjónustu. Meðal umsækjenda voru a.m.k. 7 umsækjendur með sérhæfða háskólamenntun af sviði ferðamála auk víðtækrar reynslu í atvinnugreininni. Meðal þessara umsækjanda var t.a.m. Ársæll Harðarsson, markaðsstjóri Ferðamálastofu. Read the rest of this entry »