Fyrrverandi forseti bæjarstjórnar, Gunnar Svavarsson samfylkingarmaður og núverandi formaður fjárlaganefndar Alþingis var kominn í rökþrot í ræðustóli á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í síðustu viku þegar hann greip á það ráð, eins og hann gerir víst oft, að gagnrýna menn sem ekki eru á staðnum og ræða málefni sem ekki eru til umræðu.
Í þessum anda hóf hann uppúr þurru að gagnrýna mig fyrir grein sem ég skrifaði hér á þessa heimasíðu mína fyrir einum og hálfum mánuði síðan þegar krónan tók að gefa eftir og ljóst var að þrálátu þensluskeiði í íslensku hagkerfi væri að ljúka. Hann sagði að grein þessi væri einsdæmi og sýndi það að ég væri kreppukarl og fussaði svo og sveiaði yfir því að ég hefði fagnað yfirvofandi atvinnuleysi. Grein þessi lá greinilega þungt á honum enda kom hann upp aftur og aftur og vitnaði í greinina og reyndi að gera sjálfstæðismenn á fundinum ábyrga fyrir þessum málflutningi mínum.
Ég get bara fagnað því að Gunnar lesi heimasíðu mína en tel þó rétt að benda á að menn þurfa ekki að fara í ræðustól á fundum bæjarstjórnar Hafnarfjarðar til þess að svara skrifum mínum. Ég er hvorki í bæjarfulltrúi né sit ég í nefnd eða ráðum bæjarins og gæti því misst af umræðum um skrif mín á fundum bæjarstjórnar. Ég bendi því lesendum á að nota athugasemdakerfið sem er að finna hér á síðunni. Það tryggir að allir lesendur sjái strax athugasemdirnar og það gefur mér líka sanngjarnt tækifæri til þess að bregðast við athugasemdum.
Ég mun í annarri grein útskýra betur fyrir áhugasömum lesendum afhverju ég fagnaði endalokum þensluskeiðsins á sínum tíma og afhverju ég tel að eitthvað atvinnuleysi sé nauðsynlegt í okkar hagkerfi.
Góðar stundir