Besserwisser.is

heimasíða Péturs Óskarssonar

April 24th, 2008

Farið að lögum

Er það ásættanlegt í okkar góða samfélagi að einhver hópur fólks komist upp með að svifta þúsundir almennra borgara ferðafrelsi sínu til þess að þrýsta á lægri skattheimtu til handa sjálfum sér? Að einhver hópur fólks loki stofnbrautum og valdi bæði hættu og almenningi og fyrirtækjum tug milljóna tjóni til þess eins að koma sjálfum sér og sínum rekstri í betri stöðu?

Nei mér finnst það ekki ásættanlegt. En af hverju var ekki búið að kæra vörubílstjórana fyrir athæfi sitt? Hefði ekki verið eðlilegra að kæra þá og draga fyrir dómara strax við fyrstu aðgerðir? Ef ég brýt af mér í umferðinni og óhlýðnast lögreglunni er ég þá ekki sektaður eða kærður og dæmdur? Ég átta mig ekki á því hversvegna þessi gamla og góða aðferð til að halda uppi lögum og reglum átti ekki við hér? Read the rest of this entry »

April 19th, 2008
April 10th, 2008
April 5th, 2008
April 5th, 2008
April 3rd, 2008