Nú er Gleraugnaverslunin Sjónlínan loksins búin að opna dyrnar. Þetta hefur átt sér langann aðdraganda en konan mín Kristín Dóra Sigurjónsdóttir er sjónfræðingur með réttindi til sjónmælinga. Hingað til hefur hún unnið í öðrum gleraugnaverslunum en með opnun Sjónlínunnar tók hún skrefið út í sjálfstæðann atvinnurekstur.

gleraugnaverslun

Ég hef nokkrum sinnum áður tekið þátt í að stofna fyrirtæki en það er öðruvísi að stofna fjölskyldufyrirtæki. Við undirbúning fjölskyldufyrirtækis fer hugmyndavinnan fram við eldhúsborðið á kvöldin frekar en við fundarborð á skrifstofutíma. Allt færist inná heimilið bæði ákvarðanataka sem og áhyggjur og eftirvænting. Ég hef verið frekar gagnrýninn á að hjón starfi saman í fyrirtækjarekstri en þessi undirbúningur núna hefur verið spennandi og skemmtilegur. Kannski þarf ég að fara að endurskoða afstöðu mína … Read the rest of this entry »