Það verður líklega ekki aftur snúið á leiðinni í einhverskonar mynttengingu við Evruland eða hugsanlega upptöku Evrunnar einhliða eða með inngöngu í myntbandalagið. Fjölmiðlamenn geta hinsvegar ekki ætlast til þess að seðlabankastjóri eða forsætisráðherra gefi út yfirlýsingar um vilja til upptöku Evru á þessu stigi málsins. Íslenska krónan er á opnum markaði. Viðskipti með krónuna og staða þeirra hefur gríðarleg áhrif hér innanlands. Yfirlýsing frá forsætisráðherra eða seðlabankastjóra gegn krónunni gæti sett af stað harkaleg og ófyrirsjáanleg viðbrögð á peningamarkaði. Hrun krónunnar þýðir að undirliggjandi verðbólga innanlands kemur uppá yfirborðið. Seðlabankinn hefur það sem meginmarkmið að halda verðbólgunni niðri og lág verðbólga er forsenda fyrir skynsömum kjarasamningum í vetur. Í þessu umhverfi er fáránlegt að búast við því að seðlabankastjóri og forsætisráðherra viðurkenni sannleikann um stöðu krónunnar.