Hér á árum áður voru ferðir til útlanda undantekning hjá almenningi. Farmenn á skipum og síðar flugáhafnir böðuðu sig í ljóma hins framandi og óþekkta, öfundaðir af þeim sem heima sátu. Einhverra hluta vegna var byrjað á því að leyfa þeim sem ferðuðust til útlanda að flytja inn vörur í takmörkuðu magni án þess að þurfa að borga af þeim skatta og gjöld eins og þeir sem heima sátu þurftu að borga. Mér sjálfum þótti þetta sjálfsagt og hélt reyndar sem barn og unglingur að sprúttsala væri sjálfsagður hluti af starfi flugliða og sjóliða sem ég þekkti til.
Hvert ert þú að fara ?