Frábær tími. 15 nætur í krumpuhúsinu okkar. Búið að standa lengi til og núna varð loksins af því. Veðrið var betra en elstu menn muna á þessu svæði og þó víðar væri leitað. 

dsc00031.JPG

 

Stykkishólmur: 2 nætur

Flókalundur: 1 nótt

Tálknafjörður: 3 nætur

Tungudalur: 5 nætur

Trékyllisvík: 4 nætur

Hápunktur ferðarinnar: sjóstangaveiði í Tálknafirði

Vestfirðir eru stórfenglegt landsvæði, öðruvísi en allt annað sem ég hef séð. Fjöllin háu og afskekktu byggðarlögin eru bæði heillandi en um leið ógnvekjandi. Sár minninganna á Súðavík og Flateyri minna okkur á hversu óvægin náttúruöflin geta verið.

Allan tímann sem við vorum á ferðalaginu veltum við fyrir okkur stóru spurningunum sem ekki hefur enn verið svarað. Hvernig á að bregðast við byggðavandanum á Vestfjörðurm? Hverjar eru lausnirnar? Erum við á réttri leið? Á ríkið að gera eitthvað eða eigum við að leyfa byggð í landinu að þróast án sértækra aðgerða? Olíuhreinsunarstöð? Ferðaþjónusta? Byggðakvóti?

Ég hvet alla Íslendinga til þess að heimsækja Vestfirði. Ég var að koma á vestanverða Vestfirði í þriðja sinn og örugglega ekki það síðasta.