Þegar þjóðverjar tala illa um sinn innri mann þá nefna þeir hann gjarnarn “Schweinehund”. “Der innere Schweinehund” er hinn lati og sérhlífni þáttur í fari hvers einstaklings. Í þessum orðaleik er látið eins og í hverjum manni búi hundur sem er bæði svínfeitur og latur, svona karakter eins og teiknimyndahetjan Garfield. Það er auðvitað ekki til neitt dýr sem heitir Schweinehund, þetta er óorð búið til úr orðunum svín og hundur.

Ég rakst á þetta skemmtilega kvikindi í Húsafelli nú um helgina sem var að líða. Mér fannst sem hér væri loksins komið kvikindi sem gæti kallast Schweinehund. Þessi hundur er 30cm á hæð og 25 kíló. Hann elskar að liggja og hvíla sig. Algjör sófakartafla sagði eigandinn. Lengstu göngur sem hann gengur sjálfur eru örfáar mínútur. Eftir það þarf eigandinn að bera hann og þegar heim er komið þarf að leggja sig og sofa tímunum saman. Hundur þessi hrýtur líka þegar hann er vakandi eða malar eins og hann hafi gleypt kött.

mein-innerer-schweinehund-klein.jpg