Ég er bjartsýnn á að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar verði þjóðinni til gæfu og gengis næstu árin. Ég hlakka mikið til að lesa stjórnarsáttmálann og mun fyrst fletta uppá umhverfis- og stóriðjumálunum þegar ég kemst yfir eintak af honum. Næst á eftir skoða ég utanríkismálin en afstaða stjórnarinnar til ESB  mun hafa mikil áhrif til framtíðar. Ég vil ekki sleppa því að spá fyrir um ráðherralistann.

Ég geri ráð fyrir að ráðuneytunum verði fækkað niður í 10 og til verði eitt atvinnuvegaráðuneyti sem sameinar landbúnaðar-, sjávarútvegs-, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti. Í því ráðuneyti verður einnig ferðaþjónustuhluti samgönguráðuneytisins vistaður. Ég geri ráð fyrir að Sjálfstæðisflokkur fái 5 ráðherra og forseta þingsins en Samfylkingin 5 ráðherra.

1. Forsætisráðuneyti:  Geir H. Harde

2. Utanríkisráðuneyti: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

3. Atvinnuvegaráðuneyti: Árni Matthísen

4. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

5. Dóms- og kirkjumálaráðuneyti: Björn Bjarnason (þar til hann hættir 2008) en þá tekur Bjarni Benidiktsson við.  

6. Menntamálaráðuneyti: Guðfinna Bjarnadóttir

7. Fjármálaráðuneyti: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

8. Félagsmálaráðuneyti: Jóhanna Sigurðardóttir

    

9. Umhverfisráðuneyti: Þórunn Sveinbjarnardóttir

10. Samgönguráðuneyti: Össur Skarphéðinsson

Forseti þingsins: Sturla Böðvarsson