Það er mikill léttir að heyra bæði á innvígðum og innmúruðum frammsóknar- og sjálfstæðismönnum að áframhaldandi ríkistjórnarsamstarf þessara flokka sé óhugsandi. Tilhugsunin um ríkistjórn þar sem hver einasti þingmaður hefði neitunarvald hugnast mér engan veginn og getur að mínu mati ekki orðið þjóðinni til gæfu og gengis næstu árin. Þá eru í mínum huga bara tveir kostir eftir í stöðunni. Enda er það nær óhugsandi að Steingrímur og Jón Sigurðsson gangi í eina sæng með Ingibjörgu til þess að mynda vinstri stjórn.
Aðalatriðið í mínum huga snýst ekki um það hvort að Sjálfstæðismenn ganga saman með VG eða Samfylkingu heldur miklu frekar um hvað verður samið í stjórnarsáttmála næstu ríkistjórnar. Hér eru mín samningsmarkið. Auðvitað hefur enginn áhuga á þeim nema ég sjálfur en ég set þau hér fram til þess að halda þeim til haga og bera saman við stjórnarsáttmálann þegar hann liggur fyrir: Read the rest of this entry »