Það eru góðir tímar í Hafnarfirði. Bærinn er í örum vexti og atvinnulíf og mannlíf er í miklum blóma. Margt af því fólki sem flytur af landsbyggðinni á höfuðborgarsvæðið velur Hafnarfjörð sér til búsetu og gamlir Hafnfirðingar sem farið hafa í burtu vegna náms eða annara verkefna velja flestir að setjast aftur að í bænum þegar þeir snúa til baka. Í dag eru hér 7.300 heimili og tæplega 9.000 störf í mjög fjölbreyttum greinum atvinnulífsins. Íbúatalan vex jafnt og þétt og ef fram heldur sem horfir verða Hafnfirðingar orðnir 30.000 innan fárra ára.

úr vestri

 

  

 ´Tölvumynd af álbræðslunni í Straumsvík eftir stækkun

Read the rest of this entry »