Ég á ekki auðvelt með að skilja hvernig flokksbræður mínir í Sjálfstæðisflokknum geta fellt sig við þær stóriðjuframkvæmdir sem nú eru á teikniborðinu bæði í Helguvík og í Straumsvík. Þessar stóriðjuframkvæmdir eru á báðum stöðum byggðar á kaupum á ódýrri orku frá fyrirtækjum sem eru opinberri eigu (ríki og sveitafélög). Til þess að af framkvæmdum þessum geti orðið þarf ríkisrekna eignaupptöku lands og yfirgang sem að öllu jöfnu ætti að fá hárin á höfðinu á hvaða sjálfstæðismanni sem er til þess að rísa. Ég er ekki talsmaður þess að horfa til baka og velta sér uppúr þeim stóriðjuframkvæmdum sem eru að baki en mér finnst það vera ábyrgðahlutur Sjálfstæðismanna á Íslandi að láta staðar numið núna.
