Enn berst Sól í Straumi óvæntur stuðningur við málstað sinn. Jóhannes úr Kötlum hefði aldrei, ekki frekar en Sigvaldi Kaldalóns, lánað hugvit sitt í álbræðsluauglýsingar.

Hér yfirlýsing sem birtist í Morgunblaðinu 10. janúar 2007:

“AFKOMENDUR Jóhannesar úr Kötlum skálds vilja koma eftirfarandi leiðréttingu á framfæri
vegna fréttar Stöðvar 2 um áramótaauglýsingu Alcans þ. 4. janúar sl.:

1. Í fréttinni var sagt: ,,Í stað Kaldalóns var í hinni umdeildu áramótaauglýsingu Alcans flutt gamalt þjóðlag við ljóðið Hátíð fer að höndum ein sem er eftir einn fyrrum formann Félags byltingarsinnaðra rithöfunda Jóhannes úr Kötlum.” Read the rest of this entry »