Það er með eindæmum hvað janúar er að verða góður mánuður í mínum huga. Fyrsta veturinn eftir að ég flutti til Íslands eftir 13 ára dvöl við 48 breiddargráðu leist mér satt að segja ekki á blikuna þegar líða tók á janúarmánuð. Ofan á okurvexti á krónunni, 24,5% virðisaukaskatt og fákeppni eða einokun á flestum sviðum bættist ógurlegt myrkur og válynd veður. Það var ekki laust við að ég spyrði mig hvort að ég og fjölskylda mín þyrftum endilega búa hér fyrir norðan heilbrigða samkeppni og mannvæn birtuskilyrði eða hvort skynsamlegra væri að flytja aftur suður á bóginn.
Ísold og Óskar í Skaftafelli sumarið 2006