Á heimasíðu Capacent (áður Gallup) sem kannaði skoðanir Hafnfirðinga á stækkun álversins í Straumsvík í byrjun desember eru kynntar margvíslegar rannsóknalausnir fyrir stofnanir, félagasamtök, stjórnmálaflokka og fyrirtæki. Hingað til hefur undirritaður talið Capacent vera öflugasta og besta fyrirtækið á þessu sviði á Íslandi en í kvöld breyttist sú skoðun mín.
Í viðtali við Rannveigu Rist í þættinum Ísland í dag kom fram að hún hefur nú nokkrum vikum eftir að rannsóknin fór fram ekki enn fengið niðurstöðurnar. Þetta er auðvitað hið versta mál og örugglega erfitt fyrir Rannveigu, Hrannar og Gunnar Stein að bíða eftir niðurstöðunum. Í þeirra sporum myndi ég hringa a.m.k. í lok þessarar viku og spyrjast fyrir um það hjá Capacent hvernig stendur á þessum seinagangi. Nú ef enginn svarar þá myndi ég a.m.k. hringja í næstu viku og spyrja.
Það eru ótrúlegir hlutir að gerast útum allan heim og líka í Hafnarfirði.
CAPACENT - ÁRANGUR Á ÖLLUM SVIÐUM