Þann 6. desember síðastliðinn komu fulltrúar Alcan á fund Sólar í Straumi og kynntu sjónarmið sín og stækkunarmálið í Straumsvík. Það var góður og málefnalegur fundur og Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan, lagði fram 10 rök fyrir því af hverju Hafnfirðingar ættu að samþykkja stækkun álbræðslunnar. Í málflutningi Hrannars á þessum fundi kom fram að tekjur Hafnarfjarðarkaupstaðar af álbræðslunni eftir stækkun yrði u.þ.b. 800 milljónir. Þessi upphæð er auðvitað hlægileg miðað þau álög sem álbræðslan leggur byggingarland framtíðarinnar í Hafnarfirði en engu að síður er áhugavert að skoða nákvæmlega á hverju þetta loforð Alcan byggist. Read the rest of this entry »