Búið er að selja Alcan lóð undir stækkaða starfsemi og gera deiliskipulag miðað við stækkun. Önnur yfirvöld eru búin að gefa grænt ljós m.a. á umhverfismat og starfsleyfi. Alcan er nú að semja við birgja um aðföng fyrir stækkaða verksmiðju. Það eina sem eftir er og snýr að bæjarfélaginu er útgáfa hins svokallaða framkvæmdaleyfis sem bærinn á eftir að veita Alcan til þess að framkvæmdir við stækkun geti hafist. Þetta framkvæmdaleyfi er eina tromp bæjarins gagnvart þessum áætlunum og nauðsynlegt að það leyfi verði ekki veitt nema um það náist víðtæk sátt í bænum.

Tölvumynd af hugmyndum Alcan um stækkun.