Þeir sem ekki eru búnir að lesa bókina “Draumalandið - sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð” eftir Andra Snæ Magnason ættu að hætta að lesa hér og eyða frekar sínum dýrmæta tíma í lestur þeirrar bókar. Það er í álvöru ekki skynsamlegt að taka neina afstöðu með eða móti virkjunar- og álversvæðingu landsins nema að vera búinn að lesa þá bók. Sama hvaða afstöðu þú svo tekur eftir lestur bókarinnar.

Tölvumynd af álverinu eftir stækkun