Besserwisser.is

heimasíða Péturs Óskarssonar

April 16th, 2009

Ég vil kjósa flokk sem…

vill ganga til viðræðna við EB til þess að skapa framtíðarsýn í peningamálum og auka traust. Bara þannig tekst okkur að byggja undir stöðugleika og að fá erlenda aðila til þess að fjárfesta á Íslandi og lána okkur fé sem er grundvöllur fyrir uppbyggingu atvinnulífsins í landinu.

vill skera niður lánin um 20% = færa lánin aftur til janúar 2008. Óvenjulegar aðstæður kalla á stjórnmálamenn sem þora að stíga óvenjuleg skref til þess að fækka þeim heimilum og fyrirtækjum sem lenda í vandræðum.

vill leggja áherslu á bætt rekstrarumhverfi fyrirtækjanna og treysta síðan einstaklingunum til þess að byggja aftur upp atvinnulífið. Sterkt atvinnulíf er grundvöllur hagsældar heimilanna. Stjórnmálamennirnir eiga að skapa umgjörðina, fyrirtækin störfin.

vill fækka ráðuneytum og hækka laun þingmanna og ráðamanna. Við fáum ekki besta fólkið okkar í þetta verkefni á meðan laun þingmanna ná ekki launum millistjórnenda í fyrirtækjum. Ekki er óalgengt að t.d. bæjarstjórar hafi tvöföld þingmannalaun.

vill flytja sértæk og sjaldgæf verkefni í heilbrigðiskerfi úr landi með nánu samstarfi við eitt erlent háskólasjúkrahús t.d. í Svíþjóð eða Danmörku.

vill auka ábyrgð einstaklinganna í heilbrigðiskerfinu og fyrirbyggja og bæta lýðheilsu frekar en að glíma við afleiðingar.

vill reka fimm ríkisháskóla á Íslandi: á Akureyri, Ísafirði, Egilstöðum ,Höfn í Hornafirði og í Reykjavík. Styðja jafnframt við hverskonar einkaframtak í menntamálum sem uppfyllir skilyrði ríkisins til menntamála. Önnur útgjöld til byggðamála verða skorin niður við trog.

er á móti eignasköttum.

vill jafna launa og fjármagnstekjuskatt.

vil lækka virðisaukaskatt og fella niður allar undanþágur.

vill draga úr jaðarskattaáhfum sem letja fólk til afreka.

vill kvótann aftur til þjóðarinnar á næstu árum (afskriftaleið og uppboðsleið).

vill stórauka framlög til landkynningar og kynningarmála erlendis.

vill auka framlög hins opinbera til uppbyggingar í ferðaþjónustu. Útgjöld ríkisins til sjávarútvegsins eru í dag tíföld á við framlög til ferðaþjónustu. (rekstur hafró, björgunarmál, siglingamál, hafnarmál, rannsóknarstofnanir, sjómannafsláttur o.s.f.v.).

vill flytja in heilbrigðisverkefni sem henta sérstaklega íslenskum aðstæðum.

vill nýta auðlindir þjóðarinnar með sjálfbærum og ábyrgum hætti.

vill koma á umhverfissköttum frekar en auknum tekjusköttum á fyrirtæki. Sá sem mengar mest skal skila mestu til samfélagsins.
vill að þjóðin eigi auðlindirnar en leigji einkaaðilum úrvinnsluna t.d. í orkumálum. Þar sem einkaaðilar vilja ekki fjárfesta á ríkið ekki að fara með almannafé nema ríkir almannahagsmunir krefjist þess.

vill staðfesta Árósarsamkomulagið.

vill axla ábyrgð með öðrum þjóðum í umhverfismálum án séríslenskra útblástursákvæða í framhaldsviðræðum um Kyoto.

vill styðja við menningarstarfsemi og sér í henni grundvöll tilveru okkar og hamingju í þessu landi.

January 21st, 2009
November 1st, 2008
October 24th, 2008
October 18th, 2008
October 18th, 2008
August 14th, 2008
March 30th, 2008
January 8th, 2008
September 13th, 2007