Það er ekki sjaldan sem maður verður hugsi á veitingahúsum í útlöndum þegar maður fær reikninginn í hendur og verður hugsað til eyjunnar góðu þar sem “út að borða” er algjör lúxusvara.

Ég borðaði á dögunum á mjög góðu veitingahúsi við ánna Mósel sem heitir Oase Moselschlösschen og er í bænum Traben-Trarbach. Maturinn og þjónustan voru í alla staði frábær. Hér kemur reikningurinn reiknaður yfir í íslenskar krónur á genginu 16. ágúst 2005.

1 nautacarpaccio  IKR 745,-

1 kálfafile Maderia með grænmeti IKR 1.410,-

1 eftirréttur yfirkokksins IKR 690,-

2 x Gerolsteiner miniralvatn 0,5ltr  á 295,- = IKR 590,-

Samtals kostaði þriggja rétta máltíð IKR 3.435,-. Ef ég leyfi mér að gefa veitingahúsinu og matnum einkun þá var þetta næstum sambærilegt við það besta sem gerist á Íslandi í hefðbundnu eldhúsi. Ef bestu veitingahúsin á Íslandi fá 5 stjörnur þá fékk þessi máltíð 4 1/2 stjörnur.

Í þessu samhengi er rétt að rifja upp að til þess að opna veitingahús á Íslandi þarf samtals 29 leyfi og vottorð en aðeins tvö til þess að opna skotfæraverslun. Því miður hef ég ekki á takteininum hvernig þessu er háttað í Þýskalandi en ætla mér að komast að því á næstunni.