Á vinnumarkaði

Í byrjun þessa árs dásamaði ég í grein á þessari heimasíðu minni endalok þenslunnar og boðaði betri tíð með blóm í haga og eitthvað atvinnuleysi. Ég sem starfa aðalega í útflutningsgreinum sá fyrir mér að nú væri þrautarganga útflutningsveganna á enda, loksins fengjum við fleiri krónur í kassann og að þar með væri andnauð og flótta útflutinings- og sprotafyrirtækja á Íslandi lokið. Ósk mín um aukið atvinnuleysi olli einhverju fjaðrafoki og m.a. uppskar ég fyrir það mikla gagnrýni eins bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar á fundi bæjarstjórnar lok mars eða byrjun apríl.

Bæjarfulltrúi sá er verkfræðimenntaður og heldur væntanlega eins og margir aðrir að óska atvinnuleysi þjóðar hljóti að vera 0% enda séu þá allir með vinnu og allir kátir. Það er því miður ekki svo, jafnvægi næst ekki á atvinnumarkað nema að atvinnuleysi sé í kringum 2,5-3%. Við hér á Íslandi höfum lengi fært miklar fórnir til þess að koma í veg fyrir atvinnuleysi og helst ekki viljað horfast í augu við það að ákveðið atvinnuleysi er nauðsynlegt eigi “vinnumarkaðurinn” og þar með efnahagslífið að vera í jafnvægi. Við höfum viljað hafa hér félagslegt markaðshagkerfi en viljað sleppa atvinnuleysinu með öllum tiltækum ráðum. Of lítið atvinnuleysi hefur svo valdið launaskiði á vinnumarkaði og þar með eftirspurnarverðbólgu með tilheyrandi ójafnvægi efnahagslífsins.

Mörgum mánuðum fyrir bankahrunið nú í otóber sáum við fram á samdrátt í atvinnulífinu og aukið atvinnuleysi. Það er þó merkilegt að sjá hversu hægt atvinnuleysið hefur aukist en líklega hefur brottflutningur útlendinga dregið tölurnar verulega niður. Atvinnuleysið núna í septembermánuði var 1,3% og jókst úr 1,2% í ágúst. Þó að atvinnuleysið í septemeber hafi ekki verið mikið er það mun meira en á sama tíma á árinu 2007, þegar það var 0,8%. Núna spári vinnumálastofnun því að atvinnuleysisstigið geti farið uppí 1,9% í október og þvi miður eru líkur á því að við förum næstu mánuði langt yfir það sem æskilegt gæti talist.

Góður fréttirnar eru hinsvegar þær að hluti af þessu fólki sem er að bætast við hóp atvinnulausra núna hefur mjög góða og verðmæta menntun og reynslu. Nú þarf þetta fólk að koma saman og leita nýrra leiða útúr sínum vanda. Þar sem saman kemur mikið af hæfu fólki gerast ótrúlegir hlutir og ný ævintýri sem enginn getur séð fyrir munu fara af stað.
Góðar stundir.

This entry was posted in Uncategorized. Bookmark the permalink.

Comments are closed.