eftir Gunnar Hersvein heimspeking

Gildi og aðferðir í samfélaginu eru nú til endurskoðunar. Gildi er víðtækt siðferðilegt hugtak um verðmæti sem bæta einstaklinga og samfélag. Greina má ákveðna kosti og ókosti í hverjum tíðaranda.

Tíðarandi líður nú undir lok og annar tekur við. Í könnun sem Capacent sagði frá í sumar kom fram að flestir telja að efnishyggja, skammsýni, spilling og eyðing auðlinda einkenni tíðarandann á Íslandi. Þessi tíðarandi hopar nú á hæli.
Í sömu könnun kom fram að fólk óskaði eftir öðrum gildum: samábyrgð, heiðarleika, bættum fjölskyldu- og vináttutengslum, virðingu og jákvæðni. Líklegt er að þessi gildi verði nú meira til umræðu.

Taumleysið lætur undan og nægjusemin tekur við. Nægjusemi felst í því að fækka löngunum sínum og aga þær. Efnishyggjan fólst í þeirri trú að hægt væri að fullnægja flestum hvötum sínum, löngunum, þrám og hugmyndum.
Áfallið sem fjármagnskreppan veldur skapar svigrúm fyrir samkennd og samábyrgð.

Í ljós kemur að hamingjan er ekki annars staðar, heldur heima í stofu. Þakklæti er gildi sem nú mun ná fótfestu, þakklæti yfir því sem við höfum í hendi, því betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi. Athyglinni verður nú beint að grunngildum samfélagsins. Virðing fyrir sjálfum sér og öðrum. Virðing fyrir lýðræðinu og gjöfum lífsins. Einnig virðing fyrir náttúrunni og öfugt við það sem margir halda: að nú verði náttúruundrum fórnað fyrir virkjanir þá mun náttúruvernd vaxa ásmegin. Það er gamli tíðarandinn sem segir: nú er ekkert heilagt, nú skulum við virkja fleiri fallvötn og jökulsár.

En efnishyggjan er dauð og hinn nýi tíðarandi nægjuseminnar segir: nú er margt heilagt, nú skulum við reisa atvinnulíf okkar á mörgum máttarstólpum og efla náttúruþjóðgarðana og ferðaþjónustuna.

Nú skulum við standa vörð um náttúruna sem sjálfsmynd okkar er reist á!
Jákvæð hugsun er mikilsverð þegar endursköpun á sér stað því jákvætt hugarfar ásamt gagnrýnni hugsun mun endurskapa samfélagið. Slíkt hugarfar er galdurinn á bak við allan árangur. En það er ekki meðfætt og því þarf að temja sér það ásamt víðsýni.

Forsenda velferðar er að efla þau gildi sem við viljum reisa samfélag okkar á, eins og virðingu og jafnrétti, rækta þær tilfinningar sem eru eftirsóknarverðar eins og gleði og samlíðun og með því að tileinka sér heillavænleg viðhorf til hlutanna.
Bankastofnanir falla um allan hinn vestræna heim og með þeim fellur tíðarandinn. Þetta veldur ótta og sársauka – en mikilvægt er að byggja um leið undir nýjan tíðaranda. Ekki tíðaranda svartsýni heldur tíðaranda bjartsýni sem felur í sér grunngildi mannréttinda.

Friðarmenning er eitt af þeim gildum sem mun eflast því vonandi fjarar hratt undan stríðsmenningunni sem tíðkast hefur. Friðarmenning felst í því að ráðast að rótum vandans með félagslegri uppbyggingu í stað ofbeldis.
Fall tíðaranda efnishyggjunnar skapar spennu og upplausn um stund en fljótlega mun næsti tíðarandi láta á sér kræla því hann býr þegar í samfélaginu. Orðspor þjóðarinnar verður aftur gott og nú á nýjum forsendum nægjusemi, jafnréttis,
friðarmenningar og umhverfisverndar.
Næsta kynslóð mun vonandi spila vel úr trompunum sem þegar eru á hendi. Gamli tíðarandinn var reistur á karllægum gildum en hinn nýi á samráði kynjanna! Endurskoðum gildin í samfélaginu og veljum vel þau verkefni sem
við viljum miðla til heimsbyggðarinnar

Grein eftir Gunnar Hersvein, birtist í lesbók Morgunblaðsins 11. október 2008