Ég mæli eindregið með þættinum Krossgötur sem sendur var út á Rás 1 í dag kl. 13:00. Þar ræðir Hjálmar Sveinsson útvarpsmaður við Sigmund Davíð Gunnlaugsson skipulagshagfræðing og Jónatan Garðarson framkvæmdastjóra og hafnfirðing um skipulagsmál í Hafnarfirði. Þar er sérstaklega fjallað um Strandgötuna og það skarð sem Hanza hópurinn skilur nú eftir sig óbyggt þrátt fyrir að hafa fengið Samfylkinguna til þess að samþykkja þar risastórann kumbalda sem nær langt út fyrir annars gildandi deiliskipulag í miðbænum.
Til þess að hlusta á þáttinn smelltu þá hér
Í þættinum eru nefndir til sögunnar þeir sem bera ábyrgð á skipulagsmálum í Hafnafirði í dag og skrifðu undir deiliskipulag miðbæjar árið 2004. Það eru Bjarki Elíasson, embættismaður, sviðsstjóri skipulags- og byggingamála, Lúðvík Geirsson bæjarstjóri og Gísli Valdimarsson formaður skipulags- og bygginganefndar. Þar er bent á að ábyrgð þeirra sé mikil í skipulagsklúðrum síðustu ára en einnig kemur fram gagnrýni á skipulagsmál í Hafnarfirði undanfarna áratugi.

Góðar stundir.