Er það ásættanlegt í okkar góða samfélagi að einhver hópur fólks komist upp með að svifta þúsundir almennra borgara ferðafrelsi sínu til þess að þrýsta á lægri skattheimtu til handa sjálfum sér? Að einhver hópur fólks loki stofnbrautum og valdi bæði hættu og almenningi og fyrirtækjum tug milljóna tjóni til þess eins að koma sjálfum sér og sínum rekstri í betri stöðu?
Nei mér finnst það ekki ásættanlegt. En af hverju var ekki búið að kæra vörubílstjórana fyrir athæfi sitt? Hefði ekki verið eðlilegra að kæra þá og draga fyrir dómara strax við fyrstu aðgerðir? Ef ég brýt af mér í umferðinni og óhlýðnast lögreglunni er ég þá ekki sektaður eða kærður og dæmdur? Ég átta mig ekki á því hversvegna þessi gamla og góða aðferð til að halda uppi lögum og reglum átti ekki við hér?
Við höfum í þessu landi viðurkenndar aðferðir til þess að mótmæla og koma skoðunum okkar á framfæri. Það að ráðast gegn almenningi eins og vörubílstjórar hafa gert er bæði ólöglegt og siðlaust.
Ég á erfitt með að gagnrýna lögregluna fyrir framgöngu sína í gær að öðru leyti en því að ég skil ekki af hverju sektar og dómstólaleiðin skyldi ekki hafa verið farin áður. Lögreglan bað bílstjórana kurteislega um að fara, hún setti þeim mörk og sagði þeim hvað myndi gerast ef þeir færu ekki fyrir ákveðinn tíma. Vörubílstjórarnir völdu að virða ekki þau mörk og kölluðu yfir sig að vera handteknir og fjarlægðir með valdi og ökutæki þeirra gerð upptæk. Eftir að fresturinn sem þeir fengu var runninn út fengu þeir eðlilega ekki að snúa aftur til ökutækja sinna. Lögreglan getur ekki tekið þátt í sandkassaleik, hún þarf að setja mörk og standa svo við þau.
Í svoleiðis aðstæðum má lögreglan að beita valdi og til þess hefur hún umboð í gegnum landslög. Vald eða umboð lögreglunnar til þess að beita valdi er auðvitað vand með farið og í lögreglunni eins og annarstaðar í samfélaginu eru einstaklingar sem standa ekki undir þeirri ábyrgð sem þeim er falið. Það er hlutverk yfirmanna lögreglunnar að velja þá einstaklinga af kostgæfni sem taka þátt í aðgerðum sem þessum og sigta þá hratt og örugglega úr sem ekki standa sig. Nú þarf að kæra þessa bílstjóra fyrir að valda tjóni og stofna lífi og limum höfuðborgarbúa í hættu með ólöglegum aðgerðum sínum. Það þarf líka að rannsaka þessa atburði og kanna hvort að allir lögreglumennirnir hafi staðið undir þeirri ábyrgð sem hvílir á þeim við þessar aðstæður.
Mér sýnist lögreglan hafa lært af mistökum sínum í samskiptum við meðlimi Falun Gong og Saving Iceland. Lögreglan sýndi vörubílstjórunum þolinmæði, hófsemi, kurteisi og umburðarlyndi. Það er hinsvegar ljóst að lögreglan getur ekki sætt sig við til lengdar að ekki sé farið að margítrekuðum fyrirmælum hennar.
Góðar stundir
Heihó, þú skrifar af mikilli skynsemi og drýpur af textanum ábyrgðin og góðborgarahátturinn! Verst að ég er sammála þér því lætin í bílstjórunum eru náttúrulega dálítið fjör… fyrir svo utan súrrealísk móment eins og menntskælingar í nasistabúningum og Lára Ómars að bjóðast til að sviðsetja atburði (hvort sem hún meinti það eða ekki - en hei, hver þarf svosem sviðsetningar þegar þetta er í gangi?) Svo er líka alveg dæmigert hvernig umræðan hefur verið - aukaatriði á aukaatriði ofan eins og venjulega; hvíldartími, hátt bensínverð. Hvað er raunverulega að gerast? Afhverju er þessi ofboðslega heift í trukkamönnum? Og afhverju núna? Menn láta ekki svona nema þeir séu komnir á ystu nöf. Afhverju eru þeir komnir á ystu nöf? Eitthvað hef ég lesið um að margir séu komnir í þrot með sinn bisness. Er það málið? Afhverju fjalla ekki fjölmiðlar um þetta, þ.e. hvað er raunverulega í gangi? Eða er ég kannski að missa af einhverju?
hahahaha! og súrrealisminn heldur bara áfram: sjá hér: http://www.visir.is/article/20080425/FRETTIR01/182272635
Pétur minn, ég get bara ekki hætt. Það er endalaust flóð núna af súrrealískum skemmtifréttum hér og hvar:
http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=9581
Jónas Kristjánsson segir drepfyndna skemmtisögu af Holtinu.
http://eyjan.is/hux/index.php/archives/372
Pétur Gunnarsson skrifar um tónleikaferð Geirs Haarde um heiminn: The Non-EU World Tour 2008. Meinfyndið.
Má annars ekkert vera að þessu. Er að vinna.
Á íslandi er lýðræðisleg hefð og réttindi varin í stjórnasrká þess efnis að réttur manna til að mótmæla er varinn. Þetta er eitt af grunngildum okkar. Vörubílstjórum er gert ein fárra stétta að vinna undir takmörkunum á vinnutíma eftir eftir samþykkt frá ESB. Það hefði heyrst annað hljóð í skrokki formanns Sólar í Straumi ef mótmæli hans fyrir stækkun álversins hefðu verið lamin niður með kylfum og gasi. Það eru til úrræði hjá lögreglu þegar menn brjóta umferðalög, s.s að leggja ólöglega eða tefja umferð, Sektum hefði getað verið beitt en ofbeldi lögreglu er dómgreindarleysi og sýnir einnig vanhæfi stjórnvalda að leysa ágreining af þessu tagi. Hvar er ,,Getting to Yes”