Það hefur nú legið í loftinu um nokkurn tíma að CDU og GAL (Grün-Alternative Liste) gætu sameinast í ríkisstjórn Hamborgarfylkis eftir þingkosningarnar sem nú er lokið. Eftir að umræðan um þennan möguleika fór í af stað í aðdraganda kosninganna byrjaði fylgið að hrynja af GAL. Í miklu pati rétt fyrir kosningar lýstu leiðtogar græningja því yfir að rísstjórnarsamstarf við hægrimenn kæmi ekki til greina en það náði ekki í gegn, a.m.k. tókst þeim ekki að snúa vörn í sókn fyrir kosningar. Það voru þung skref fyrir flokkinn að bakka frá þessari yfirlýsingu núna strax eftir kosningar og örugglega ekki til þess að bæta ímynd stjórnmálanna í Þýskalandi.

Freie Hansestadt Hamburg
Þýskaland skiptist í 16 fylki og þar af eru tvö borgarfylki Hamburg og Bremen. Í borgarfylkjunum eru fylkis- og sveitarstjórnarverkefni á einni hendi þannig að ríkisstjórnin (Der Senat, 10 meðlimir) er um leið borgarstjórnin. Borgarstjórnin er studd af fylkisþinginu (Bürgerschaft) en þar sitja í Hamburg 121 fulltrúi. Í þingkosningunum árið 2004 fengu hægrimenn (CDU) hreinan meirihluta en fyrir u.þ.b. ári varð ljóst að litlar líkur væru á að það næðist aftur árið 2008.

Yfirlýsing GAL rétt fyrir kosningarnar setti flokkinn í mikinn vanda eftir kosingarnar en sætin skiptust sem hér segir:

CDU 56 hægrimenn
GAL 12 græningjar
SPD 45 kratar
Linke 8 vinstrimenn

Spennandi tilraun
Það verður gaman að fylgjast með því hvernig stjórnarsamstarfið þróast í Hamburg. Angelika Merkel kanzlari sagði áður en hún sagði nokkuð annað að þetta módel væri alls ekki í deiglunni í Berlín. Reynslan hefur þó kennt Þjóðverjum og mörgum öðrum þjóðum að það sem nútíma stjórnmálamenn segja er ekki það sem þeir meina og ennþá síður það sem þeir gera þegar á hólminn er komið. Tíminn mun leiða í ljós hvort að þetta módel smitar út frá sér eða ekki.