Það er lýðskrum hjá andstæðingum ríkistjórnarinnar að gagnrýna Geir H. Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu fyrir leiguflug þeirra til Búkarest á dögunum. Ég veit það sjálfur af reynslu minni úr ferðaþjónustunni að ódýrasti kosturinn er nær aldrei hagkvæmasti kosturinn og leiguflug getur einfaldlega verið ódýr lausn.
Samkvæmt mínum athugunum hefði ódýrasti ferðamáti tekið samtals 26 klukkustundir (www.dohop.com) fram og til baka fyrir utan að hópurinn hefði þurft að leggja af stað 12 klukkustundum fyrr í ferðalagið. Með leiguflugi var hægt að leggja af stað á réttum tíma og allur hópurinn sparaði sér 14 klukkustundir í ferðatíma og 12 klukkustundir í ónýttan eða ílla nýttan tíma á staðnum auk hótelrýmis fyrir allan hópinn í eina nótt og þar með dapeninga fyrir allan hópinn í einn sólahring.
Þvert ofan í kannski hugmyndir margra þá er venjulegur flugmiði frá Keflavík til Bukarest rándýr en ég fann ódýrustu leiðina á 125 þúsund krónur í gegnum London. Ég geri ráð fyrir að sama leið kosti á betra farrými með vinnuaðstöðu, vinnufrið og betri þjónustu á bilinu 200 - 250 þúsund en leiguflug sömu leið gæti kostað í kringum 4 milljónir og því auðveldlega verið lang ódýrasti kosturinn fyrir t.d. 12 manna hóp sem sparaði heilan sólahring í ferðalög, gistingu og dagpeninga.
Góðar stundir