Fátt hefur verið lofað eins í hástert undanfarin ár eins og nýjar reglur um möguleika feðra á fæðingarorlofi og skilyrðing ákveðins hluta fæðingarorlofsins til föðursins sem annars fellur niður. Þetta var sannarlega þörf breyting og mikilvægt skref í jafnréttisátt. Ekki síður verður að lofa þær viðtökur sem þessi valkostur hefur fengið hjá nýbökuðum feðrum þessa lands sem fara nær allir í eitthvað fæðingarorlof.
Sú skoðun hefur verið að ryðja sér til rúms á meginlandinu, þar sem mjög hefur dregið úr vilja fólks til að eignast börn, að í raun sé það verkefni að eignast börn þjónusta við samfélagið sem beri að launa sem slíka. Án nýrra þegna leggjast samfélögin af og sú framtíðarsýn gefur þessum hugmyndum byr undir báða vængi. Sumir telja að ekki verði þess langt að bíða að t.d. í Þýskalandi fái foreldrar beinar greiðslur fyrir að eignast börn, að minnsta kosti upphæð sem nemur þeim kostnaði að eignast og ala upp börn. Þannig á sá sem eignast börn að standa fjárhagslega jafnfætis þeim sem ákveður að eignast ekki börn og eyða tíma sínum og peningum í annað.
Ég sjálfur er ekki viss um að þetta sé góð leið að fara en er hinsvegar sannfærður um að hér uppá Íslandi sé nauðsynlegt að við lengjum fæðingarolofið þannig að leiksskólar og álvöru uppeldisstofnanir geti tekið við dagvistun barnanna um leið og báðir foreldrar hverfa aftur út á vinnumarkaðinn. Fæðingarorlofið og leikskskólarnir verða að ná saman. Mér finnst ekki ásættanlegt að þetta bil sé brúað með svokölluðum dagmæðrum/dagfeðrum eins og gert er í dag. Dagmæðrakerfið byggir uppá að alltað fimm mállaus börn (9 mánaða til 2 ára) eru geymd inná heimli ókunnugs fólks sem hvorki hefur nema kannski af tilvljun menntun og þekkingu til að reka dagvistun fyrir börn. Til frásagnar og eftirlits með þessari starfsemi er næstum enginn. Splúnkuný reglugerð Árna Magnússonar félagsmálaráðherra til þess að púkka uppá þetta handónýta kerfi breytir litlu þar um. Ég held að stefnan hljóti að vera að losa okkur við þetta fyrirbæri og lengja fæðingarolofið annarsvegar og hinsvegar að taka fyrr á móti börnunum í leikskóla.
Lifið heil