Það hafa verið spennandi tímar hjá mér undanfarið að kynnast gleraugnabransanum. Heimur gleraugnaviðskipta er sérstakur fyrir margrahluta sakir. Fyrstu gleraugnasalar á Íslandi voru augnlæknar sem fluttu inn sjóngler frá útlöndum og seldu þau sjúklingum sínum. Þegar fram liðu stundir komu fyrstu sjóntækjafræðingarnir til Íslands og byrjuðu að selja íslendingum sjóngler samkvæmt fyrirmælum sem gefin voru út af augnlæknum. Þjónusta gleraugnaverslanna er skemmtileg blanda af tísku og hárnákvæmu handverki.

gleraugu

Í dag eru gleraugnaverslanir á Íslandi vel á þriðja tug og þar starfa í flestum tilfellum sjónfræðingar með réttindi til sjónmælinga og verkstæðiskunnáttu. Árið 2005 var Ísland eitt af síðustu löndum í Evrópu til þess að leyfa sjónfræðingum með sjónmælingaréttindi að mæla sjón þrátt fyrir hávær mótmæli einhverra augnlækna. Sjónfræði og sjóntækjafræði er ekki hægt að læra á Íslandi og því er hópur fagmanna í greininni frekar fámennur.

Allt fram á síðustu ár var gleraugnabransinn nær eingöngu einyrkjagrein. Fagmaðurinn rak sína verslun ásamt verkstæði og lét þar við sitja. Fyrir örfáum árum kom lyfsölukeðjan Lyf & Heilsa inná markaðinn og reka þeir nú 4 verslanir meðal annars gleraugnaverslunina Mjódd og gleraugnaverslunina Augsýn í Hafnarfirði. Fleiri aðilar reka nú fleiri en eina verslun t.d. Pro Optik í Kringlunni, Spönginni og Hagkaup Skeifunni og Optical Studio í Smáralind, Keflavík og í Leifstöð.

Sú staða sem gleraugnaverslunin í Leifstöð hefur er furðuleg og ótrúlegt að íslenskir gleraugnasalar hafi ekki beitt þrýstingi til þess að koma þeirri starfsemi á beinu brautina. Fróðir menn úr bransanum telja að u.þ.b. 25% af öllum gleraugum sem seld eru á Íslandi séu afhent í Optical Studio í Leifstöð bæði við komu og brottför til landsins.

Á dögunum fór ég í Optical Studio í Smáralind og spurðist fyrir um gleraugu. Um leið og ég spurði um verð spurði starsfmaðurinn “ert þú að fara út eða þekkir þú einhvern sem er að fara út?, þú sparar 25% ef þú færð einhvern til að sækja þau fyrir þig í Leifstöð”
Viðskiptamódel Optical Studio gengur út á það að íslenskir neytendur smygli gleraugum keyptum í versluninni aftur inní landið.

Hver sá sem búsettur er á Íslandi og kaupir gleraugu á fríhafnarsvæðinu sem kosta meira en 23.000 krónur er skyldugur til þess að framvísa þeim í rauða hliðinu við komuna til landsins og greiða af þeim virðisaukaskatt. Nær öll gleraugu sem seld eru til sjónlagsleiðréttinga kosta meira en 23.000 krónur án virðisaukaskatts. Samkvæmt mínum heimildum má telja þau gleraugu sem íslenskir neytendur framvísa í rauða hliðinu á ári hverju á fingrum annarar handar. En sömu heimildir herma að meira en 95% viðskiptavina Optical Studio í Leifstöð séu búsettir á Íslandi. Þetta þýðir að nær öllum gleraugum sem afhent eru í Leifstöð er smyglað aftur inn í landið og ríkið verður af tugmilljóna innflutningsvirðisaukaskatti sem það á samkvæmt lögum að innheimta. Til viðbótar við þann virðisaukaskatt sem þarna tapast er ríkið að veita einu fyrirtæki skálkaskjól og skekkja þannig alla samkeppni á þessum markaði á Íslandi.

Nú ætti að vera einfalt fyrir tollgæsluna sem á að fylgja þessum málum eftir að sækja bókhald Optical Studio síðustu sex árin og bera saman nöfn þeirra sem búsettir eru á íslandi og fengu þar afhent gleraugu sem kostuðu meira en 23.000 IKR og nöfn þeirra sem hafa framvísað gleraugum sínum í rauða hliðinu á þessum árum. Það er skylda tollgæslunnar að ganga í þetta verkefni og það er skylda skattyfirvalda á Íslandi að láta öll fyrirtæki sitja við sama borð þegar kemur að innheimtu skatta.Verslun í flughöfnum er góðra gjalda verð og ég sjálfur geri stóran hluta af mínum innkaupum á fötum, bókum, töskum og fleiru á flugvöllum. Í löndum Evrópu greiði ég fullan virðisaukaskatt af þessum vörum samkvæmt landslögum þar sem ég er. Ef ég er búsettur utan við ESB get ég fengið þennan virðisaukaskatt endurgreiddan. Þannig borga allir sem gera sín innkaup á Kastrup flugvelli fullan virðisaukaskatt af öllum vörum sem þeir kaupa þar. Íslendingar geta hinsvegar fengið endurgreiðslu ef þeir eru ekki búsettir í ESB og eru á leið t.d. til Íslands.

Ég er talsmaður samkeppni og viðskiptafrelsis neytendum til hagsbóta. Íslenskir gleraugnasalar eru í mikilli samkeppni innbyrðis og alvöru samkeppni við gleraugnasala í nágrannalöndunum þar sem íslenskir neytendur eru á ferð. Það er gott og svoleiðis á það að vera. Það er hinsvegar út í hött og særir réttlætiskennd mína að fríhöfnin í Leifstöð skuli með aðgerðaleysi yfirvalda vera notuð sem skálkaskjól eins fyrirtækis til þess að skekkja samkeppni á þessum markaði innanlands. Engin önnur verslun í Leifstöð misnotar aðstöðu sína með sama hætti og Optical Studio og væntalega er bara tímaspursmál hvenær Tollgæsla og skattyfirvöld taka á málinu.

Góðar stundir.

Pétur Ó.