Á föstudagskvöldiđ voru minningartónleikar í Víđistađakirkju um vin minn Birgi Grétarsson sem lést eftir hörmuleg vinnuslys 27. október 1987. Birgir lét eftir sig barnshafandi unnustu, Hönnu Björk Guđjónsdóttur. Bćđi hún og Björg dóttir ţeirra sem varđ tvítug á föstudaginn komu fram á tónleikunum sem og hópur valinkunnra tónlistarmanna sem nánast allir eru úr nánustu fjölskyldu Birgis. Víđistađakirkja var ţéttsetin og 400-500 manns komu á tónleikana. Stemmingin var frábćr og tónleikarnir voru mjög flottir.

Međal ţeirra sem fram komu var kór Flensborgarskólans en Birgir söng í ţeim kór á menntaskólaárum sínum. Brćđur Birgis Gummi og Ingi Valur og dóttir hans léku syrpu af lögum, Ingibgjörg Guđjónsdóttir frćnka Birgis og sópransöngkona söng eitt lag. Hann Björk Guđjónsdóttir söng ţrjú lög og dúett međ dóttur sinni Björgu. Djassgeggjararnir Óskar og Ómar Guđjónsynir frćndur Birgis léku nokkur lög. Međal undirleikara voru Antonia Havesi, Andri Ţór Ólafsson og Matthías Hemstock.
Allir listamennirnir gáfu vinnu sína og allur ágóđi rann til Neistans, styrktarfélags hjartveikra barna, í minningu Sigríđar Grétarsdóttur systur Birgis, sem lést sökum hjartagalla ađeins mánađargömul áriđ 1966.

Ég hafđi aldrei fariđ á minningartónleika og vissi ekki hverju ég átti von. Ég hafđi ţó grun um ađ vel yrđi ađ verki stađiđ enda frábćrt hćfileikafólk á ferđinni. Ég var virkilega snortinn ţetta kvöld, ţađ var yndislegt ađ hitta fjölskyldu Birgis og alla ţessa gömlu Flensborgara og fólkiđ sem mađur tengdist í gegnum Birgi. Minningarnar sem áđur voru svo sárar eru ekki lengur sárar. Notalegar minningar um góđa tíma og góđan dreng hafa vikiđ fyrir sorginni og ţađ er gott.