Nú er Gleraugnaverslunin Sjónlínan loksins búin að opna dyrnar. Þetta hefur átt sér langann aðdraganda en konan mín Kristín Dóra Sigurjónsdóttir er sjónfræðingur með réttindi til sjónmælinga. Hingað til hefur hún unnið í öðrum gleraugnaverslunum en með opnun Sjónlínunnar tók hún skrefið út í sjálfstæðann atvinnurekstur.

gleraugnaverslun

Ég hef nokkrum sinnum áður tekið þátt í að stofna fyrirtæki en það er öðruvísi að stofna fjölskyldufyrirtæki. Við undirbúning fjölskyldufyrirtækis fer hugmyndavinnan fram við eldhúsborðið á kvöldin frekar en við fundarborð á skrifstofutíma. Allt færist inná heimilið bæði ákvarðanataka sem og áhyggjur og eftirvænting. Ég hef verið frekar gagnrýninn á að hjón starfi saman í fyrirtækjarekstri en þessi undirbúningur núna hefur verið spennandi og skemmtilegur. Kannski þarf ég að fara að endurskoða afstöðu mína …
Sjónlínan er fullbúin gleraugnaverslun með öllum þeim tækjum og tólum sem hægt er að hugsa sér í svona rekstri. Við fórum þá leið að fjárfesta frekar í nýjasta og besta búnaði sem völ er á frekar en að byrja með ódýrari tæki sem síðan hefði þurft að endurnýja innan fárra ára. Ef þú vilt skoða heimasíðuna eða þig vantar gleraugu þá skalt þú ýta hér.

Okkar helsta tromp í samkeppninni hér á landi eru sérsniðin margskipt gler fyrir þá sem þurfa á margskiptum glerjum að halda. Það er fólk eins og ég 40 ára og eldri. Við gerðum samning við stærsta glerjaframleiðanda Þýskalands Rodenstock um kaup á sérstöku greiningartæki sem heitir ImpressionIst. Tæki þetta er þrívíddarmælitæki og myndgreinir sem tengdur er beint inní framleiðslu fyrirtæksins í Þýskalandi. Með þessum búnaði náum við að útbúa fullkomin margskipt gler sem sérsniðin eru að þörfum hvers viðskiptavinar. Það liggur í hlutarins eðli að vörubílstjóri sem stundar veggtennis og hestamennsku þarf öðruvísi gleraugu en rithöfundur sem vinnur við tölvu og horfir mikið á sjónvarp. Upplýsingar um þessi sérsniðnu gler finnur þú hér.

Fyrir utan venjuleg gleraugu í Sjónlínunni er einnig boðið uppá lesgleraugu, sólgleraugu og barnagleraugu í Sjónlínunni.

Sjónlínan á að vera einstök gleraugnaverslun þar sem boðið er uppá góðar vörur og framúrskarandi þjónustu. Vönduð vinnubrögð, heiðarleiki og fagmennska eru lykilþættir í daglegu starfi Sjónlínunnar. Viðskiptavinir okkar og þeirra óskir og þarfir eru miðpunkturinn í allri ákvarðanatöku. Eigandinn er sjálfur fagmaðurinn í versluninni og viðskiptavinirnir geta leitað faglegrar ráðgjafar beint til hans.

Við lítum á rekstur Sjónlínunnar sem langhlaup. Öll uppbygging og rekstur er hugsaður til framtíðar. Sjónlínan er hafnfirskt fyrirtæki og kynnir sig og sínar vörur þar sem því verður viðkomið í samstarfi við önnur fyriræki í Hafnarfirði. Við viljum að Hafnfirðingar og nærsveitamenn þekki Sjónlínunna og geti gengið þar að miklum gæðum og framúrskarandi þjónustu um ókomna tið.

www.sjonlinan.is - einstök gleraugnaverslun