Fréttir dagsins eru góðar. Þær bestu að mínu mati eru þær að Þórunn Sveinbjarnardóttir verður umhverfisráðherra og Össur Skarphéðinsson iðnaðaráðherra. Þarna er Samfylkingin komin í lykilstöðu til þess að standa við “Fagra Ísland” sem þau kynntu fyrir kosningarnar. Ég trúi að á morgun verði tilkynnt um stóriðjustopp í einhvern tíma. Vonandi þangað til sátt hefur náðst um náttúruverndaráætlun landsins.
Ég er líka ánægður að sjá Guðlaug Þór í hlutverki heilbrigðisráðherra. Þar eru stórkostlegir möguleikar fyrir sjálfstæðismann sem þorir og ég held að Guðlaugur sé maður í þann slag. Fjármálin og menntamálin eru svo í góðum höndum hjá Árna Matt og Þorgerði Katrínu.
TIL HAMINGJU ÍSLAND !!!