Jæja, þá liggur það loksins fyrir. Hafnfirðingar höfnuðu stækkun álversins eftir margra mánaða umræður og kosningabaráttu sem á kjördegi skipti bænum nokkurnveginn í tvær jafn stórar fylkingar. Frá mínum bæjardyrum séð völdu Hafnfirðingar með þessari niðurstöðu friðinn í bænum enda mjög hæpið að fara út í svona stóra framkvæmd í andstöðu við helming íbúanna í bænum.
Ég er að sjálfsögðu mjög sáttur við niðurstöðuna. Ég mun búa í Hafnarfirði um ókomin ár og leggja mitt af mörkum til þess að gera góðan bæ betri.
Það er gaman að horfa til baka núna eftir að niðurstaðan liggur fyrir og velta fyrir sér hvað hafði mest áhrif á kjósendur í bænum meðan á umræðunni stóð. Hér eru nokkrir mikilvægir þættir sem örugglega hafa haft sitt að segja.
- Umdeildar uppsagnir starfsmanna Alcan og baráttufundur í Bæjarbíói
- Hótun Alcan um málsókn vegna kosninga um stækkun
- Heimasíða Sólar í Straumi www.solistraumi.org
- Boðstónleikar með Bó og boðsknattleikur FH / Haukar
- Gjafadiskur DVD með Bó á hvert heimili í bænum
- Gjafadagatal með Hafnfirskum listamönnum á hvert heimili
- Hótun Alcan um lokun verði ekki af stækkun
- Fundir Sólar í Straumi um stækkunarmálið
- Herferð Hags Hafnarfjarðar “Já 31. mars”
- Myndir af 405 starfsmönnum á hvert heimili og lokunarhótun ítrekuð
- Plakat Sólar í Straumi með framtíðarsýn fyrir Hafnarfjörð án stækkunar
- DVD Diskur með auglysingaefni Alcan um stækkun og bréf frá Rannveigu
- Herferð Sólar í Straumi “jákvæðir Hafnfirðingar segja NEI 31. mars”.
- Herferð Alcan “Stærra og betra Álver”
- Bréf frá bændum við Þjórsá með áskorun um að segja NEI
Þetta er auðvitað ekki tæmandi yfirlit en samt sem áður ágætis samantekt um baráttuna sem stóð fyrir okkur í Sól í Straum í u.þ.b. sex mánuði. Það er mjög langur tími ef maður skoðar hversu stutt er í alþingiskosningar og baráttan er rétt að hefjast.
Það eru góðir hlutir að gerast í Hafnarfirði.