Ég á ekki auðvelt með að skilja hvernig flokksbræður mínir í Sjálfstæðisflokknum geta fellt sig við þær stóriðjuframkvæmdir sem nú eru á teikniborðinu bæði í Helguvík og í Straumsvík. Þessar stóriðjuframkvæmdir eru á báðum stöðum byggðar á kaupum á ódýrri orku frá fyrirtækjum sem eru opinberri eigu (ríki og sveitafélög). Til þess að af framkvæmdum þessum geti orðið þarf ríkisrekna eignaupptöku lands og yfirgang sem að öllu jöfnu ætti að fá hárin á höfðinu á hvaða sjálfstæðismanni sem er til þess að rísa. Ég er ekki talsmaður þess að horfa til baka og velta sér uppúr þeim stóriðjuframkvæmdum sem eru að baki en mér finnst það vera ábyrgðahlutur Sjálfstæðismanna á Íslandi að láta staðar numið núna.

Fyrir því eru margar ærnar ástæður, hér eru nokkrar:
Hinn margrómaði hagvöxtur af stóriðjuframkvæmdum veldur miklum usla í efnahagslífi landsins sem bitnar á útflutningsfyrirtækjunum okkar í öllum greinum. Endurtekinn uppblástur efnahagslífsins með stóriðjuframkvæmdum lýsir líka ákveðinni vantrú stjórnmálamanna á íslensku þjóðina. Í stefnu sjálfstæðisflokksins segir “Sjálfstæðisstefnan er umfram allt stefna markvissrar jákvæðrar þróunar til betri lífskjara og lífsfyllingar. Trúin á manninn er í öndvegi sjálfstæðisstefnunnar“ Ég lýsi eftir framtíðarsýn sem byggir á þessum gildum, ríkisrekin orkufyrirtæki í eignaupptöku landssvæða og leynimakki á kosnað almennings hljóta að vera algjörlega út úr kortinu fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Fyrir dyrum standa stórkostlegar framfarir í orkumálum. Eftir 6-15 ár verðum við búin að ná tökum á djúpborunum* og þá marfaldast sú orka sem við fáum frá þeim gufuaflsvirkjunarsvæðum sem við höfum nú þegar lagt undir gufuaflsvirkjanir. Þar með getum við sparað okkur stórkostleg náttúrspjöll á Reykjanesi og í neðri hluta Þjórsár. Af hverju liggur svona mikið á núna? Er einhver atvinnulaus á svæðinu? Eru einhver fyrirtæki háð því að af framkvæmdum verði núna strax? Eru einhver sveitafélög háð því að strax verði ráðist í framkvæmdir?
Ábatinn af stóriðju fyrir aðra en eigendur álfyrirtækjana er meira enn óljós í dag. Arðsemin af Landsvirkjun hefur ekki haldið í við verðbólgu undanfarin ár, gufuaflsfyrirtækin þurfa að fórna stórkostlegum náttúruperlum til þess að geta útvegað þá ódýru orku sem þau hafa lofað. Við leggjum hundruði ferkílómetra undir háspennumannvirki sem valda sjónmengun í náttúru landsins um ókomna framtíð. Ef þessar fórnir eru reiknaðar inní dæmið þá eru þessar áætlanir ekkert annað en umverfisspjöll og opinber taprekstur til einhverra áratuga.
Við erum með stóriðju í Helguvík og Straumsvík að sóa tækifærum einstaklinganna. Afhverju ekki að treysta hugviti og áræðni fólksins á Reykjanesskaganum fyrir framtíðinní á þessu svæði. Bláa Lónið, Gjáin, Eldfjallagarður á Reykjanesi, Vikingaþorp í Hafnarfirði, hvalaskoðun og Víkingasafn í Reykjanesbæ eru hugmyndir til framtíðar, stóriðja er fortíðarmúsík sem virkaði vel fyrir 40 árum í Hafnarfirði. Það eru breyttir tímar og því á ábyrgð stjórnmálamanna að horfa fram á veginn en ekki til baka.
*) sjá t.d. http://www.visir.is/article/20061120/FRETTIR01/61120079
P.Ó.