Þann 6. desember síðastliðinn komu fulltrúar Alcan á fund Sólar í Straumi og kynntu sjónarmið sín og stækkunarmálið í Straumsvík. Það var góður og málefnalegur fundur og Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Alcan, lagði fram 10 rök fyrir því af hverju Hafnfirðingar ættu að samþykkja stækkun álbræðslunnar. Í málflutningi Hrannars á þessum fundi kom fram að tekjur Hafnarfjarðarkaupstaðar af álbræðslunni eftir stækkun yrði u.þ.b. 800 milljónir. Þessi upphæð er auðvitað hlægileg miðað þau álög sem álbræðslan leggur byggingarland framtíðarinnar í Hafnarfirði en engu að síður er áhugavert að skoða nákvæmlega á hverju þetta loforð Alcan byggist.
Loforð þetta er samsett úr tveimur þáttum, annarsvegar byggir það á því að ríkistjórnin heimili Alcan að fara inní íslenskt skattaumhverfi og hinsvegar tekjum Hafnfirðinga af höfninni sem er í eigu bæjarins. Við það að fara inní íslenskt skattaumhverfi lækkar tekjuskattshlutfall Alcan úr 33% í 18% og félagð verðum um leið skyldugt til að greiða fasteignagjöld til bæjarins. Miðað við núverandi rekstur Alcan lækka samanlagðar skattatekjur ríkis og bæjar við þessa ráðstöfun en tekjur bæjarins aukast um fasteignagjöldin. Því miður hafa tekjur Hafnarfjarðarkaupstaðar af fasteignagjöldum í Straumsvík ef til stækkunar kemur ekki verið gefnar upp af neinum öðrum en Alcan sjálfum og verða því að skoðast sem óstaðfestar enn um sinn.
Það er auðveldara fyrir utanaðkomandi að skoða fullyrðingu Alcan um tæplega 300 milljóna tekjur af Höfninni. Þessar tölur voru frá upphafi undarlegar og óskaði Sól í Straumi eftir útreikningum Alcan á þessum þætti. Það kom svo fram í þessari viku í tölvupóstsamskiptum undirritaðs við Alcan, Hafnarstjóra og upplýsingafulltrúa Hafnarfjarðarbæjar að þessi upphæð er röng og miðað við þau kjör sem Alcan hefur hjá höfninni í dag. Upphæðin eftir stækkun miðað við samningsverð Alcan í dag er u.þ.b. 175 milljónir á ári. Þar sem höfnin þarf ekki að fara út í neinar fjárfestingar vegna stækkunarinnar er þó líklegra að hafnargjöld fyrir hvert tonn af áli muni lækka frekar en hækka eftir stækkun.
Hér lítur út fyrir að Alcan sé að beita bæjarbúa blekkingum gegn betri vitund. Það er grafalvarlegt mál, enda hefur félagið hingað til notið mikils trausts hvað þetta varðar. Bæjarbúar hafa hingað til litið á tölulegar upplýsingar frá Alcan sem traustar og áreiðanlegar, þó svo að einhverjir hafi kannski verið ósammála túlkun og framsetningu þeirra.
Þetta dæmi sýnir svo ekki verður um villst að það er nauðsynlegt fyrir Hafnfirðinga að bæjarstjórn kalli til óháða sérfræðinga til þess að fara yfir stækkunarmálið og staðfesta eða leiðrétta þær upplýsingar sem settar hafa verið fram í stækkunarmálinu. Krafa um kostnaðar-/ábatagreiningu vegna nýtingu 10 ferkílómetra mengunarsvæðis er líka sjálfsögð og gerum við ráð fyrir að í hana verði ráðist strax eftir áramót.
Ef bæjarbúar vilja stækkaða álbræðslu þá er það þeirra ákvörðun en það er óásættanlegt að Alcan skammti bæjarbúum heimalagaðar upplýsingar um málið