
Pétur Óskarsson
Ég er 41 árs, þriggja barna fjölskyldufaðir, Hafnfirðingur af lífi og sál og hef starfað í og við íslenska ferðaþjónustu frá árinu 1991. Ég hef samstals búið í 14 ár í þýskumælandi Evrópu, þar af lengst í München höfuðborg Bæjaralands. Ég á ættir að rekja norður á Strandir, í Ölfusið og á Vatnsleysuströnd. Uppáhaldsstaðurinn minn er Trékyllisvík í Árneshreppi á Ströndum en þar á fjölskylda mín sumarhús.
Starfsferill
2003-2008 Framkvæmdastjóri Viator ehf. sumarhúsamiðlunar og starfandi sjórnarformaður Katla DMI ehf, ferðaskrifstofu og Katla Travel GmbH ferðaskrifstofu í München.
1997-2003 Framkvæmdastjóri Katla Travel GmbH í München. Katla Travel GmbH er
ferðaheildsölufyrirtæki sem sérhæfir sig í ferðum frá þýskumælandi Evrópu til Íslands, Færeyja og Grænlands.
1992-1997 Sölu- og markaðsstjóri hjá Set Reisen GmbH í München. Set Reisen
GmbH er ferðaheildsölufyrirtæki sem sérhæfir sig í Íslandsferðum.
1988-1989 Aðstoðarmaður markaðsstjóra Rásar 2 hjá RUV. Sala og gerð útvarpsauglýsinga hjá auglýsingadeild RUV.
1987-1988 Sölumaður hjá GS Júlíussyni. Heildverslun með byggingavörur. Sala í byggingavöruverslanir um land allt.
1987 Vegabréfaskoðun á Keflavíkurflugvelli. Starfsmaður Tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli.
1985-1986 Fararstjóri hjá Icelandair í Austurríki. Fararstjórastarf í Mayrhofen og Walchsee í Tiról í Austurríki. Umsjón með dagsferða og afþreyingardagskrá fyrir íslenska ferðamann í vetrar- og sumarferðum.
önnur störf Frá árinu 1995 hef ég með öðrum störfum starfað sem sjálfstæður markaðs- og rekstrarráðgjafi ýmissa fyrirtækja í ferðaþjónustu m.a. hótela, bílaleigufyrirækja og ferðaheildsölufyrirtækja.
Menntun
1994-1995 University of Applied Science Augsburg, rekstrarhagfræði, sérgrein: markaðsfræði. Akademísk gráða: Dipl. Betriebswirt (FH).
1989-1994 Fachhochschule München, rekstrarhagfræði, sérgrein: ferðaþjónusta
1982-1987 Flensborgarskólinn í Hafnarfirði, stúdent af félagsfræðibraut
Persónulegir hagir
Er búsettur í Hafnarfirði. Er í sambúð með Kristínu Dóru Sigurjónsdóttur sjónfræðingi. Við eigum þrjú börn, Diljá f. 1999, Óskar f. 2003 og Ísold f. 2003. Fjölskyldufyrirtækið okkar heitir Sjónlínan ehf, www.sjonlinan.is og er gleraugnaverslun við Strandgötuna í Hafnarfirði.
Félagsstörf og áhugamál
Helstu áhugamál eru íslensk ferðaþjónusta, framtíð Íslands, efnahagsmál, náttúruvernd, hestamennska, stjórnmál og útivist.
Formaður félags háskólamenntaðra ferðamálafræðinga.
Talsmaður og sit í stjórn Sólar í Straumi, þverpólitísks félags um framtíð Hafnarfjarðar
Sit í sóknarnefnd Ástjarnarsóknar í Hafnarfirði
Meðlimur í hestamannafélaginu Sörla í Hafnarfirði
Meðlimur í Germaníu, félagi þýskalandsvina á Íslandi
Er formaður foreldrafélags leikskólans Hjalla í Hafnarfirði
Er formaður Miðbæjarsamtakana í Hafnarfirði
Meðlimur í Rotaryklúbbi Hafnarfjarðar
Sat í stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar starfsárið 2004-2005
Sat í stjórn Framtíðarlandsins, félags áhugafólks um framtíð Íslands, 2007-2008