Ég vil kjósa flokk sem…

vill ganga til viðræðna við EB til þess að skapa framtíðarsýn í peningamálum og auka traust. Bara þannig tekst okkur að byggja undir stöðugleika og að fá erlenda aðila til þess að fjárfesta á Íslandi og lána okkur fé sem er grundvöllur fyrir uppbyggingu atvinnulífsins í landinu.

vill skera niður lánin um 20% = færa lánin aftur til janúar 2008. Óvenjulegar aðstæður kalla á stjórnmálamenn sem þora að stíga óvenjuleg skref til þess að fækka þeim heimilum og fyrirtækjum sem lenda í vandræðum.

vill leggja áherslu á bætt rekstrarumhverfi fyrirtækjanna og treysta síðan einstaklingunum til þess að byggja aftur upp atvinnulífið. Sterkt atvinnulíf er grundvöllur hagsældar heimilanna. Stjórnmálamennirnir eiga að skapa umgjörðina, fyrirtækin störfin.

vill fækka ráðuneytum og hækka laun þingmanna og ráðamanna. Við fáum ekki besta fólkið okkar í þetta verkefni á meðan laun þingmanna ná ekki launum millistjórnenda í fyrirtækjum. Ekki er óalgengt að t.d. bæjarstjórar hafi tvöföld þingmannalaun.

vill flytja sértæk og sjaldgæf verkefni í heilbrigðiskerfi úr landi með nánu samstarfi við eitt erlent háskólasjúkrahús t.d. í Svíþjóð eða Danmörku.

vill auka ábyrgð einstaklinganna í heilbrigðiskerfinu og fyrirbyggja og bæta lýðheilsu frekar en að glíma við afleiðingar.

vill reka fimm ríkisháskóla á Íslandi: á Akureyri, Ísafirði, Egilstöðum ,Höfn í Hornafirði og í Reykjavík. Styðja jafnframt við hverskonar einkaframtak í menntamálum sem uppfyllir skilyrði ríkisins til menntamála. Önnur útgjöld til byggðamála verða skorin niður við trog.

er á móti eignasköttum.

vill jafna launa og fjármagnstekjuskatt.

vil lækka virðisaukaskatt og fella niður allar undanþágur.

vill draga úr jaðarskattaáhfum sem letja fólk til afreka.

vill kvótann aftur til þjóðarinnar á næstu árum (afskriftaleið og uppboðsleið).

vill stórauka framlög til landkynningar og kynningarmála erlendis.

vill auka framlög hins opinbera til uppbyggingar í ferðaþjónustu. Útgjöld ríkisins til sjávarútvegsins eru í dag tíföld á við framlög til ferðaþjónustu. (rekstur hafró, björgunarmál, siglingamál, hafnarmál, rannsóknarstofnanir, sjómannafsláttur o.s.f.v.).

vill flytja in heilbrigðisverkefni sem henta sérstaklega íslenskum aðstæðum.

vill nýta auðlindir þjóðarinnar með sjálfbærum og ábyrgum hætti.

vill koma á umhverfissköttum frekar en auknum tekjusköttum á fyrirtæki. Sá sem mengar mest skal skila mestu til samfélagsins.
vill að þjóðin eigi auðlindirnar en leigji einkaaðilum úrvinnsluna t.d. í orkumálum. Þar sem einkaaðilar vilja ekki fjárfesta á ríkið ekki að fara með almannafé nema ríkir almannahagsmunir krefjist þess.

vill staðfesta Árósarsamkomulagið.

vill axla ábyrgð með öðrum þjóðum í umhverfismálum án séríslenskra útblástursákvæða í framhaldsviðræðum um Kyoto.

vill styðja við menningarstarfsemi og sér í henni grundvöll tilveru okkar og hamingju í þessu landi.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Summer houses in Iceland great alternative to hotels and guesthouses

“Foreign tourists get exclusivity and convenience as well as great value for money when they stay at summer cottages in Iceland,” says Petur Oskarsson, the co-owner of Viator summer cottage rental agency. Oskarsson says that staying in summer cottages is the ideal accommodation alternative for families or small groups visiting Iceland because it is less expensive – yet exclusive and more suitable than staying at hotels and guesthouses.
Continue reading

Posted in Uncategorized | Comments Off

Takk Færeyingar

takk_faroe_islands_501x101px.gif

Posted in Uncategorized | Comments Off

Sú hagsæld sem hlýst af stöðugleika hefur verið stórlega vanmetin.

“Verkefnum í vegaframkvæmdum hefur áður verið frestað vegna þenslu og nú getur verið að þeim verði frestað vegna kreppu segir Anna Guðrún Edvardsdóttir stjórnarformaður Fjórðungssambands Vestfirðinga” (fréttastofa RUV sagði frá).

Fórnarlömb ójafnvægis í efnahagslífinu liggja víða.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Á vinnumarkaði

Í byrjun þessa árs dásamaði ég í grein á þessari heimasíðu minni endalok þenslunnar og boðaði betri tíð með blóm í haga og eitthvað atvinnuleysi. Ég sem starfa aðalega í útflutningsgreinum sá fyrir mér að nú væri þrautarganga útflutningsveganna á enda, loksins fengjum við fleiri krónur í kassann og að þar með væri andnauð og flótta útflutinings- og sprotafyrirtækja á Íslandi lokið. Ósk mín um aukið atvinnuleysi olli einhverju fjaðrafoki og m.a. uppskar ég fyrir það mikla gagnrýni eins bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar á fundi bæjarstjórnar lok mars eða byrjun apríl.

Continue reading

Posted in Uncategorized | Comments Off

Gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu

Þessa dagana þegar þjóðinni skortir gjaldeyri til þess að leysa út vörur í útlöndum hefur umræðan um raunverulegar gjaldeyristekjur af innlendu atvinnuvegunum fengið aukið vægi. Andri Snær Magnason bendir t.d. á það í góðri grein í Fréttablaðinu í dag að nettó gjaldeyristekjur þjóðarinnar af álverinu við Reyðarfjörð og Kárahnjúkavirkjun samanlagt eru fimm milljarðar á ári eða u.þ.b. 7% af heildarútfluningstekjum álversins. Það eina sem verður í raun eftir í landinu eru laun starfsmanna, innlend aðföng, skattar og gjöld.

Í þessu samhengi er gaman að glugga í tölur Hagstofunnar og Seðlabanka Íslands um ferðaþjónustuna. Fyrir nokkrum vikum voru kynntir í fyrsta skipti staðlaðir þjóðhagsreikningar þar sem tekið er tillit til þáttöku ferðaþjónustunnar þar sem hún kemur við á hinum ýmsu sviðum efnahagslífsins. Heildartekjur af íslenskri ferðaþjónustu árið 2006 eru 135 milljarðar á ári eða 11,5% af landsframleiðslu. Heildaraðföng ferðaþjónustunnar (innlend og erlend) árið 2006 eru alls 77 milljarðar eða 57% af heildarkaupum á ferðaþjónustu. Rúmlega helmingur eða 70 milljarðar eru gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum. Hluti af þessum tekjum eða 37% eru fargjaldatekjur en 63% eða 44 milljarðar eru kaup á innlendri ferðaþjónustu. Því miður vantar nákvæmar tölur en gera má ráð fyrir að stór hluti þessara 44 milljarða skili sér inn í þjóðarbúið og þá megi nota til þess að greiða fyrir olíu, hveiti, pappír og aðrar nauðsynjavörur í erlendri mynt. Rökin fyrir þessari fullyrðingu eru þau að hlutfall aðfanga í fargjaldatekjum er mjög hátt (olía, leiga og kaupleiga á faratækjum, varahlutir, rekstrarvörur) en mun lægri í hótel og veitingarekstri þar sem laun og innlend aðföng eru stórir kostnaðarliðir.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Hinn nýji tíðarandi

eftir Gunnar Hersvein heimspeking

Gildi og aðferðir í samfélaginu eru nú til endurskoðunar. Gildi er víðtækt siðferðilegt hugtak um verðmæti sem bæta einstaklinga og samfélag. Greina má ákveðna kosti og ókosti í hverjum tíðaranda.

Tíðarandi líður nú undir lok og annar tekur við. Í könnun sem Capacent sagði frá í sumar kom fram að flestir telja að efnishyggja, skammsýni, spilling og eyðing auðlinda einkenni tíðarandann á Íslandi. Þessi tíðarandi hopar nú á hæli.
Í sömu könnun kom fram að fólk óskaði eftir öðrum gildum: samábyrgð, heiðarleika, bættum fjölskyldu- og vináttutengslum, virðingu og jákvæðni. Líklegt er að þessi gildi verði nú meira til umræðu.

Continue reading

Posted in Hugleiðingar | Comments Off

Skynsamleg orkunýting

Við íslendingar eigum að nýta náttúruauðlindir okkar. Ég er sannfærður um að orkuauðlindir okkar geti fært okkur meiri hagsæld en þær gera í dag. Skynsamleg nýting er lykilorðið. Er það skynsamlegt að 80% af orkuframleiðslu okkar fari í framleiðslu á einum málmi? Er það skynsamlegt að 80% af orkuframleiðslu okkar fari í eigingjarna stóriðju (orkufrekjur – í Hafnafirði hafa tvö fyrirtæki orðið til í kringum starfsemi álversins í Straumsvík á rúmlega 40 árum). Er skynsamlegt að virkja fyrst á viðkvæmum svæðum eins og á Reykjanesi og Þeystareykjum og ljúka svo við rammaáætlun um náttúruvernd og nýtingu? Það er ljóst að víða felst besta nýtingin í verndun náttúrunnar.

Posted in Uncategorized | Comments Off

Arðsemisrök

Grein um orkumál eftir Sigurð Jóhannesson hagfræðing.

Enginn lifir á því að selja vöru með tapi. Það breytist ekki þótt viðskiptavinurinn eigi heima langt í burtu og borgi með útlendum peningum. Ef gróðavon er í rafmagnssölu til stóriðju hljóta margir að vera tilbúnir að setja eigin peninga í þann rekstur. Stundum eru markaðir ófullkomnir og tilstilli ríkisins þarf til þess að koma á hagkvæmri starfsemi. Til dæmis er því haldið fram að þeir sem setja fé í rannsóknir og þróun njóti ekki afrakstursins einir. Þess vegna þurfi hið opinbera að styðja þá iðju. En enginn markaðsbrestur réttlætir að hið opinbera virki ár, ef það gengur ekki upp á viðskiptalegum forsendum, frekar en ástæða var til dæmis til þess að grípa inn í þegar þjóðin hafnaði súkkulaðigosdrykknum SÚKKÓ um árið.
Continue reading

Posted in Hugleiðingar | Comments Off

Brú í Hrútafirði og Kaffi Norðurfjörður

Í meira en 40 ár hef ég ferðast reglulega á milli Hafnarfjarðar og Árneshrepps á Ströndum. Þar er móðir mín fædd og uppalin og afi minn og amma bjuggu þar fyrstu ár ævi minnar. Frá árinu 1980 hefur fjölskyldan átt sumarhús í Trékyllisvík. Ég man eftir mörgum ferðum í hinum ýmsu farartækjum og gleymi ekki hvernig baðvatnið varð brúnt af vegryki þegar við bræðurnir vorum settir í bað eftir bílferðir sem oft tóku allan daginn. Ég var ekki gamall þegar ég fór að hafa áhuga á veitingahúsunum á leiðinni þó að framan af hafi áherslan verið á nesti sem var undirbúið fyrir brottför og tekið með í ferðalagið.

midnaetursol-klein.jpg

Miðnætursól í Trékyllisvík í lok júní 2008

Fyrstu veitingahúsaferðir ævi minnar voru stoppin í Brú í Hrútafirði. Það var þvílíkt ævintýri að stoppa þar og panta sér mat að þegar maður kom loksins norður og hitti frændur og frænkur sem höfðu líka verið á sömu leið þá var þetta oftar en ekki fyrsta umræðuefnið. Hvernig var ferðin? Hvað fékkstu þér í Brú? Og svo fylgdu langar umræður og vangaveltur um hamborgara, samlokur, gosdrykki og franskar. Umræðurnar voru litaðar af mikilli tilhlökkun hjá okkur börnunum yfir því að eiga aðra máltíð í Brú í vændum á bakaleiðinni. Verstu ferðir mínar á þessum árum norður í Árneshrepp voru með frændfólki sem ekki stoppaði og borðaði í Brú. En það kom örsjaldan fyrir að maður þurfti að fá far með einhverjum öðrum en mömmu og pabba. Með þannig fólki vildi ég ekki ferðast og forðaðist að fá far með þeim sem ekki voru gulltryggðir Brúarstopparar.

Síðan ég var ungviði í aftursæti eru liðin mörg ár og mikið vatn hefur runnið til sjávar í Hrútafirði. Ég er löngu farinn að ráða mínum ferðum sjálfur en einhvernvegin hef ég haldið í þann sið að stoppa í Brú þó að allt hafi verið þar á niðurleið í áratugi. Hvert einasta stopp hefur í raun botnað næsta stopp á undan en allt er þarna í fullkominni niðurniðslu, ungviðið sem sett er þarna inn til þess að þjónusta og elda mat kann ekkert, ekki einu sinni mannasiði og maturinn sem borinn er á borð er lágkúran sjálf, lágkúran við þjóðveginn.

Það eru auðvitað fleiri möguleikar til þess að stoppa á leiðinni en bestu fréttirnar eru þær að vegirnir eru orðnir svo góðir að ég get farið norður í Trékyllisvík á 5 klukkutímum. Mér dugar í raun að stoppa í Borgarnesi (Nýja Olís eða bakaríið við brúarsporðinn) og aka svo í einum spretti í Trékyllisvík. Toppurinn er svo að aka 10km í viðbót áfram veginn og hvíla sig á Kaffi Norðurfirði sem er besta veitingahúsið við íslenska þjóðvegakerfið. Þar fær maður frábærar veitingar, góða þjónustu, hagstætt verð og útsýni yfir Norðurfjörð í kaupbæti.

Posted in Prívat | Comments Off